Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur

Ráðhúsið í Reykjavík.
Ráðhúsið í Reykjavík. mbl.is/Ómar Óskarsson

Sjálfstæðisflokkurinn fengi 34,2 prósent atkvæða í Reykjavík ef borgarstjórnarkosningar færu fram í dag. Þetta sýna niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Fréttablaðsins, Stöðvar 2 og Vísis.

Þetta er næstum tvöfalt meira en Vinstri grænir fengju, en þeir eru næststærsti flokkurinn samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar með 17,8%. Samfylkingin er með 13,7 prósent, Píratar 12,4 prósent. Flokkur fólksins er með 7 prósenta fylgi. Framsóknarflokkurinn fengi 2,7% og Björt framtíð er með sama fylgi.

Könnunin var gerð þannig að hringt var í 1.063 manns í Reykjavík samkvæmt lagskiptu slembiúrtaki dagana 28. og 29. ágúst þar til náðist í 791. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir aldri. Svarhlutfallið var 74,4 prósent. Alls tóku 46 prósent þeirra sem náðist í afstöðu til spurningarinnar. Tólf prósent sögðust ekki ætla að kjósa eða skila auðu, tæp 18 prósent voru ekki búin að gera upp hug sinn og 24 prósent vildu ekki svara spurningunni.

Spurt var: Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til sveitarstjórnarkosninga í dag? Ef ekki fékkst svar var spurt: Hvaða flokk er líklegast að þú myndir kjósa? Ef ekki fékkst svar var spurt: Er líklegra að þú myndir kjósa Sjálfstæðisflokkinn, eða einhvern annan flokk?

Sjá nánar á Vísi

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert