Búast við að samþykkja 10 framboð

11 flokkar skiluðu inn framboðslistum. Einn flokkur hefur dregið framboð …
11 flokkar skiluðu inn framboðslistum. Einn flokkur hefur dregið framboð sitt til baka og búist er við að hin 10 verði samþykkt af yfirkjörstjórnum í dag. Tvær vikur eru til kosninga. mbl.is/Styrmir Kári

Formenn yfirkjörstjórna í kjördæmunum sex búast við að framboð þeirra flokka sem skiluðu inn framboðslistum í gær verði samþykkti í dag, að framboðslistum Íslensku þjóðfylkingarinnar undanskilinna.  

Kjörstjórnir gerðu athugasemdir við undirskriftir framboðslistanna og hefur Íslenska þjóðfylkingin dregið alla fjóra framboðslista sína til baka.

Frétt mbl.is: Íslenska þjóðfylkingin býður ekki fram

Yfir­kjör­stjórn fundar í dag og fer yfir hvort ein­hverj­ir gall­ar eru á fram­boðunum sem borist hafa til alþingiskosninganna. Finn­ist gall­ar er umboðsmönn­um lista gef­inn kost­ur á að leiðrétta þá og má veita frest í því skyni. Blaðamaður mbl.is ræddi við formenn allra yfirkjörstjórna sem búast ekki við að frekari gallar finnist á framboðslistunum eftir að Íslenska þjóðfylkingin dró lista sína fjóra til baka. 

Þeir flokk­ar sem eiga sæti á Alþingi bjóða fram í öll­um kjör­dæm­um ásamt Miðflokkn­um og Flokki fólks­ins. Alþýðufylk­ing­in býður fram í fjór­um kjör­dæm­um, en Dög­un býður aðeins fram í Suður­kjör­dæmi.

Ekki von á óvæntum tíðindum

Öll níu framboð sem bárust í Norðvesturkjördæmi hafa verið samþykkt. Ingi Tryggvason, formaður yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi staðfestir það í samtali við mbl.is.

Yfirkjörstjórn í Norðausturkjördæmi mun funda ásamt umboðsmönnum framboðslista í Hofi á Akureyri klukkan 16 í dag. Að fundinum loknum mun yfirkjörstjórnin kveða upp úrskurð sinn. Ólafur Rúnar Ólafsson, formaður yfirkjörstjórnar í Norðausturkjördæmi segir í samtali við mbl.is að ekki sé von á neinum óvæntum tíðindum þegar yfirkjörstjórnin kemur saman í dag.

„Við úrskurðuðum 10 gild framboð en gerðum alvarlegar athugasemdir við framboð Íslensku þjóðfylkingarinnar og þeir drógu framboð sitt til baka í gærkvöldi,“ segir Ólafía Ingólfsdóttir, formaður yfirkjörstjórnar í Suðurkjördæmi. Athugasemdirnar voru þær sömu og yfirkjörstjórnir í Reykjavík gerðu, það er að um sömu rithönd væri að ræða á undirskriftarlistum framboðslistanna.

Yfirkjörstjórn í Suðvesturkjördæmi fundar nú í hádeginu þar sem farið verður yfir úrskurðargildi framboðanna, að sögn Ástríðar Grímsdóttur, formanni yfirkjörstjórnar í Suðvesturkjördæmi.

Fundir yfirkjörstjórna í Reykjavíkurkjördæmunum fara fram klukkan 13:30 og 14 í dag. „Við erum ekki búin að ljúka yfirferðinni að fullu,“ segir Erla S. Árnadóttir, formaður yfirkjörstjórnar í Reykjavíkurkjördæmi norður. Á fundinum vonast hún til að hægt verði að afgreiða þau 10 framboð sem eru til meðferðar hjá kjörstjórninni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert