Formenn funda aftur í ráðherrabústað

Bjarni Benediktsson, Katrín Jakobsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson, formenn þeirra …
Bjarni Benediktsson, Katrín Jakobsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson, formenn þeirra þriggja flokka sem nú ræða ríkisstjórnarmyndun, í ráðherrabústaðnum í gær. Þeir funda þar aftur í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Formenn flokkanna þriggja sem eru í stjórnarmyndunarviðræðum munu funda aftur í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í dag rétt eins og þeir gerðu í gær.

Málefnahópar flokkanna munu einnig funda í dag.

Að sögn Bergþóru Benediktsdóttur, framkvæmdastjóra þingflokks Vinstri-grænna, verður dagskráin í dag beint framhald af þeim viðræðum sem hafa átt sér stað.

Hún segir ganginn góðan í viðræðunum og telur að það muni koma í ljós eftir daginn í dag hvort það náist að ljúka við málefnasamning um helgina.

Enginn þingflokksfundur hefur verið boðaður hjá Vinstri-grænum í dag vegna viðræðnanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert