Þrjár Önnur leiða lista VG

Fanney Kristjánsdóttir, Helga Björt Jóhannsdóttir, Anna Margrét Arnarsdóttir oddviti, Anna …
Fanney Kristjánsdóttir, Helga Björt Jóhannsdóttir, Anna Margrét Arnarsdóttir oddviti, Anna Berg Samúelsdóttir, Anna Sigrún Jóhönnudóttir, Katrín Jakobsdóttir formaður VG, Guðlaug Björgvinsdóttir, Steinunn Dagmar Björgvinsdóttir, Ingibjörg Þórðardóttir, Guðrún Tinna Steinþórsdóttir og Þórunn Björg Halldórsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Anna Margrét Arnarsdóttir er oddviti á fyrsta lista Vinstri grænna í Fjarðabyggð, fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. 17 konur og einn karla skipa listann.

Segir í tilkynningu að listinn hafi verið samþykktur með lófataki á félagsfundi VG á Austurlandi fyrir hádegi í dag, að viðstaddri Katrínu Jakobsdóttur, formanni Vinstri grænna.

Þá vekur athygli að þrjár Önnur skipa efstu þrjú sætin, því í öðru sæti listans er Anna Berg Samúelsdóttir og í því þriðja Anna Sigrún Jóhönnudóttir.

Anna Margrét Arnarsdóttir, oddviti VG í Fjarðabyggð sagði á fundinum: „Framboð VG er mjög mikilvægt fyrir Fjarðabyggð því hér þarf að koma ákveðnum málefnum inn í umræðuna, sem hafa ekki verið áberandi hingað til. Málefni eins og umhverfisvernd, kvenfrelsi, jafnréttisbarátta hinsegin samfélagsins og fjölskyldumál.“

18 manns skipa listann:

  1. Anna Margrét Arnarsdóttir, háskólanemi.
  2. Anna Berg Samúelsdóttir, náttúru- og landfræðingur.
  3. Anna Sigrún Jóhönnudóttir, öryrki.
  4. Helga Björt Jóhannsdóttir, framhaldsskólanemi.
  5. Guðrún Tinna Steinþórsdóttir, hjúkrunarfræðingur.
  6. Steinunn Dagmar Björgvinsdóttir, framleiðslustarfsmaður.
  7. Þórunn Björg Halldórsdóttir, verkefnastjóri.
  8. Helga Guðmundsdóttir Snædal, viðskiptafræðingur.     
  9. Marta Zielinska, leiðtogi framleiðslu.
  10. Auður Hermannsdóttir, kaffihúseigandi.
  11. Ingibjörg Þórðardóttir, framhaldsskólakennari.
  12. Guðlaug Björgvinsdóttir, BA í félagsvísindum.
  13. Fanney Kristjánsdóttir, leik- og grunnskólakennari.
  14. Styrmir Ingi Stefánsson, íþróttafræðingur.
  15. Kristín Inga Stefánsdóttir, framleiðslustarfsmaður
  16. Selma Kahriman Mesetovic, skrifstofustarfsmaður.
  17. Hrönn Hilmarsdóttir, hjúkrunarfræðingur og ljósmóðurnemi.
  18. Þóra Þórðardóttir, eldri borgari.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert