Hversu vel ertu að þér um þá einstaklinga sem eiga sæti á þjóðþingi Íslendinga? Alls eiga 63 sæti á Alþingi og óhætt er að segja að sumir þingmenn eru meira áberandi og þekktari en aðrir embættisbræður og -systur þeirra. Margir hafa setið á þingi árum ef ekki áratugum saman en töluverð nýliðun átti sér þó stað við þingkosningarnar sem fóru fram fyrir tæpum tveimur árum. Jú, mikið rétt! Kjörtímabilið er að verða hálfnað og því hefur mbl.is tekið saman lítið próf til að athuga hversu vel lesendur eru að sér um þá sem eiga sæti á Alþingi. Því er spurt, lesandi góður, hvort þú þekkir þingmanninn? Rétt er að taka fram að það er bannað að „gúggla“ eða kíkja á heimasíðu Alþingis. Þeir sem svindla verða að eiga það við sína samvisku. Gangi þér vel!

Byrja

Þú varst með rétt.

Deila á facebook