Smiðsstarfið er hörkuvinna að sögn Skarphéðins Njálssonar en getur hentað öllum. „Það þarf að vera gott tempó á manni og maður þarf að vera klár í vinnuna, það er ekkert hægt að vera með hálfkák,“ segir Skarphéðinn sem tók stefnuna ungur á smiðsstarfið enda úr mikilli smíðafjölskyldu. „En auðvitað geta allir unnið við þetta.“