„Af hverju ekki? Þessi hurð er alltaf opin og því má búast við hverju sem er,“ segir Riad Dubiak, íbúi við Hafnargötu 32 þar sem eldur braust út í nótt, þegar hann er spurður hvort hann telji að kveikt hafi verið í húsinu. Í sumar brann bíll á bílastæði við húsið og var grunur um íkveikju þá líka.