Lagið Nótt eftir Svein Rúnar Sigurðsson tekur þátt í úrslitum Söngvakeppni Sjónvarpsins á laugardaginn. Sveinn segir lagið hafa verið samið um hánótt vegna anna, rétt eins og flest önnur lög hans. Sveinn er sprenglærður tónlistarmaður en hann starfar einnig sem yfirlæknir heilsugæslu Akraness.