Vefur Iceland Express verðlaunaður

Ómar Ólafsson, yfirmaður upplýsingatæknimála Iceland Express, tekur við verðlaunum
Ómar Ólafsson, yfirmaður upplýsingatæknimála Iceland Express, tekur við verðlaunum

Vefur Iceland Express var valinn besti vefur lággjaldaflugfélaga á ráðstefnunni World Low Cost Airlines Congress sem fram fór í síðustu viku en vefsvæði yfir hundrað lággjaldaflugfélaga tóku þátt í forvali. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Á ráðstefnunni eru veitt ýmis verðlaun til þeirra lággjaldaflugfélaga sem hafa þótt skara fram úr á ýmsum sviðum og meðal þátttakenda eru m.a. flugfélög á borð við easyJet, Ryanair, Southwest og JetBlue.

Við val á besta vefsvæði lággjaldaflugfélaga var lögð áhersla á að vefsvæðin væru stílhrein og að upplýsingar væru settar fram á skýran hátt. Sérstaklega mikilvægt var að bókunarferli væri einfalt og þægilegt í notkun. Jafnframt var tekið tillit til útlitshönnunar, mynda, textagerðar og hugmyndaauðgi við framsetningu efnis, samkvæmt tilkynningu.

Fyrir ráðstefnuna voru tilnefnd sjö vefsvæði sem þóttu skara fram úr og voru þar auk Iceland Express flugfélögin AirAsia, Wizz Air, Oasis Hong Kong, Silverjet, Tiger Airways og FlyNordic.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert