Sjónvarpið í vasanum


„Það er í raun og veru hægt að segja að þetta sé sjónvarp á þínum eigin skilmálum.“ Svona lýsir Baldip Singh vörunni Slingbox en hann var staddur hér á landi fyrir skömmu til að kynna vöruna fyrir tilvonandi samstarfsaðilum og öðrum áhugasömum einstaklingum.

Slingbox er tæki sem gerir notendum kleift að senda merki frá til dæmis afruglurum, DVD-spilurum og fleiru slíku, þráðlaust á milli staða í gegnum netið. Því getur fólk horft að efni úr afruglaranum sínum heima, á fartölvunni sinni í sumarbústaðnum eða á 3G-farsímanum sínum inni á kaffihúsi, að því gefnu að þráðlaust netsamband sé til staðar.

Með aukabúnaði sem ber heitið Sling Catcher geta notendur svo horft á efnið í öðrum sjónvörpum. Öll aukaþjónusta, til dæmis VOD-þjónusta Skjásins eða rafrænn dagskrárvísir er einnig aðgengileg í gegnum Slingbox. „Það sem þú getur gert á sjónvarpinu heima, geturðu gert á þessu.“

Engin ástæða til að óttast

Aðspurður hvort rétthafar sjónvarpsefnis ættu ekki að hafa áhyggjur af búnaði sem Slingbox segir Baldip að það sé engin ástæða til þess að óttast að Slingbox verði grundvöllurinn að einhverri ólöglegri útsendingarstarfsemi.

„Það sem maður þarf að hafa í huga er að hvað sem ég geri í gegnum Slingbox-ið það gerist líka heima fyrir. Við deilum ekki stöðvum og við sendum ekkert út. Þetta er einn-á-einn samband.“

Boltinn á ferðinni

Það eru eflaust einhverjir sem efast um notagildi tækis á borð við Slingbox og Baldip segir að margir muni eflaust afskrifa Slingbox sem einhvers konar óþarfa.

Hann segir þó að um leið og fólk hafi prófað tæknina einu sinni sjái það hversu notadrjúg hún er í raun og veru. Því til sönnunar nefnir Baldip að þegar hann hafði beðið eftir flugi sínu til Íslands hafi fótboltaleikur verið í sjónvarpinu en engin sjónvörp á flugvellinum hafi sýnt frá leiknum.

„Ég sat þarna með fartölvuna mína á þráðlausu neti og horfði á fótboltann. Áður en ég vissi af höfðu safnast í kringum mig tíu vinir sem ég vissi ekki að ég ætti, sem allir vildu horfa á fótboltann og voru furðu lostnir yfir því að svona lagað væri hægt.“

Slingbox er nú þegar fáanlegt í Finnlandi og Baldip segir að búnaðurinn sé væntanlegur annars staðar á Norðurlöndum innan tíðar. Aðspurður hvenær Íslendingar geta fjárfest í svona búnaði segir Baldip að um leið og samningar hafa náðst við samstarfsaðila hér á landi muni Slingbox verða fáanlegt á Íslandi

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert