Barnsbros er vímugjafi

Það er ekki amalegt að fá svona bros frá barni
Það er ekki amalegt að fá svona bros frá barni Reuters

Bros barns örvar ánægjustöð heila móður þess, svo taugaboðefnið dópamín losnar úr læðingi. „Það mætti lýsa þessu sem náttúrulegri vímu,“ segir Lane Strathearn, prófessor sem stýrði rannsókninni þar sem þetta kom í ljós.

Fyrir rannsakendunum vakti að skilja betur samband móður og barns. Vonast þeir til að öðlast dýpri skilning á því hvernig sambandið er þegar vel lætur – en þykir jafnvel mikilvægara að skilja hvernig samband móður og ungabarns geti rofnað.

Virkni í heila mæðra var skoðuð á meðan þeim voru sýndar myndir af ýmsum börnum. Reyndist virkni í ánægjustöðinni aukast þegar konurnar sáu myndir af börnum sem þær áttu ekki, en það var ekkert í líkingu við þá aukningu sem varð þegar þær sáu myndir af eigin börnum. Langmest var aukningin þegar afkvæmin voru brosandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert