Hætta að reykja til að vernda gæludýrin

Sígarettureykur getur m.a. valdið lungnakrabbameini hjá hundum.
Sígarettureykur getur m.a. valdið lungnakrabbameini hjá hundum. Reuters

Bandarískir vísindamenn segja að það séu meiri líkur á því að reykingarfólk hætti að reykja gæludýranna sinna vegna heldur en til að passa upp á eigin heilsu.

Alls tóku 3.300 gæludýraeigendur þátt í könnun sem vísindamenn hjá Center for Health Promotion and Disease Prevention hjá Henry Ford Health System í Detroit. Það kom í ljós að 28% af þeim sem reyktu að þeir myndu hætta til að koma í veg fyrir að gæludýrin þeirra verði fyrir áhrifum óbeinna reykinga.

Önnur rannsókn hefur leitt í ljós að tengsl eru á milli sígarettureyks og krabbameina og annarra heilsufarsvandamála í köttum og hundum.

Vísindamennirnir skrifa í blaðið Tobacco Control að fáir reykingarmenn geri sér grein fyrir áhrifum reykinga á dýrin.

Nokkrar rannsóknir hafa sýnt fram á reykurinn geti valdið eitilfrumukrabbameini í köttum og lungnakrabbameini í hundum.

Þá er vitað til þess að hundar hafi fengið ofnæmi. Fuglar hafa fengið augnsjúkdóma og átt erfitt með öndun. Þá hafa kettir fengið krabbamein í munnholi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert