Vefur SVÞ liggur niðri vegna vírusárása

Vefsíða Samtaka verslunar og þjónustu, www.svth.is, varð fyrir vírusárás í síðustu viku og hefur það haft þær afleiðingar að erlendir þjónustuaðilar hafa lokað fyrir aðgang að síðunni. Vefsíðan hefur þegar verið hreinsuð af vírusum og er verið að vinna í því að greiða úr þessari flækju en vefsíðan er enn lokuð, samkvæmt upplýsingum frá samtökunum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert