IBM kynnir nýjan tæknibúnað

Trukkurinn frá IBM.
Trukkurinn frá IBM.

Færanleg sýning á vegum tæknifyrirtækins IBM er nú hér á landi. Sýningin er í 36 tonna vörubíl og þar er m.a. að finna IBM netþjóna, sýndarvæðingarlausnir, eftirlitskerfi, rekkaþjóna og blaðaþjóna.

Samkvæmt upplýsingum frá Nýherja er Ísland fyrsta landið, sem IBM trukkurinn heimsækir eftir viðamikla uppfærslu á búnaðinum.

Er almenningi boðið að skoða trukkinn við verslun Nýherja í Borgartúni á morgun. Segir Nýherji, að þessi heimsókn sé einstaklega spennandi fyrir áhugafólk um tölvutækni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert