Tækni & vísindi
| mbl
| 1.6.2010
| 16:57
Tíðni krabbameina eykst
Samkvæmt nýjustu spá Alþjóðheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) stefnir allt í að krabbamein verði dánarmein 13,3 milljón manna á ári árið 2030. Til samanburðar mun geta þess að árið 2008 létust 7,6 milljónir manna úr krabbameini.
Nýjar rannsóknir á tíðni krabbameina benda til þess að allt að 21,3 milljónir manna greinist með krabbamein árið 2030 og þar af láti 13,3 milljónir manna í minni pokann fyrir sjúkdómnum.
Freddie Bray, vísindamaður hjá Alþjóðlegu krabbameinsrannsóknarmiðstöðinni, stjórnaði fyrrgreindri rannsókn sem náði til 27 mismunandi tegunda krabbameina. Hann segir að árið 2008 hafi 56% þeirra 12,7 manna sem greindust með ný krabbameinstilfelli og 63% þeirra 7,6 manna sem létust úr krabbameini búið í þróunarríkjunum.
Tölur sýna að það ár var lungnakrabbamein algengast krabbameinið, en þar á eftir kom brjóstakrabbamein og ristilkrabbamein. Flest krabbameinstilfelli greindust í fjölmennustu ríkjum heims, þ.e. Kína, Indlandi og Bandaríkjunum. Dánartíðnin var hæst í Norður-Ameríku, vesturhluta Evrópu og Ástralíu.
Að sögn Bray skýrist há dánartíðni í fyrrgreindum löndum út frá neyslumynstri almennings í ríkari löndum heims eftir síðari heimsstyrjöld þar sem reykingar hafi t.d. verið mjög algengar. Á síðustu árum hafi reykingar aukist til muna í þróunarríkjunum og það skýri hækkandi tíðni lungnakrabbameins á heimsvísu.

© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá
Honda Civic
Honda Civic árg. 1997 til sölu. Sparneytinn bíll, ný tímareim, nýtt bremsukerfi...
HUNDAFÖT Á GÓÐU VERÐI
Er með hettupeysur, galla, rakkableiur og fl. Útsala á ullarpeysum uppl í síma 8...
3ja herb. íbúð í Hraunbæ til leigu
Á 3.hæð, nýleg íbúð, sérinngangur, langtímaleiga. kr. 145.000. trygging 3 mán. ...
Glæsilegur & Vandaður Snyrtistóll
Kostar nýr 600.000 kr er um 2 ára gamall
fæst á aðeins kr 275.000 ekki krónu ...