Farsímanotkun ekki skaðleg heilsu

Samanteknar niðurstöður rannsókna sem birst hafa í vísindaritum til þessa sýna ekki skaðleg heilsufarsáhrif frá rafsegulgeislun við þráðlaus samskipti undir sem eru að styrk fyrir neðan þau viðmiðunarmörk sem tekin hafa verið upp á Norðurlöndum. Á þetta m.a. við um geislun frá farsímum, farsímamöstrum og staðarnetum (WiFi, WLAN). Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu norrænu geislavarnastofnananna (STUK, SSM, NRPA, SIS, IRSA) sem birt var í dag.

Notkun farsíma eykur ekki áhættu á æxlum

Í maí árið 2011 birti hópur sérfræðinga á vegum Alþjóðakrabbameinsstofnunarinnar (IARC), sem er hluti Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO), niðurstöðu sína og ákvað að flokka geislun eins og notuð er við þráðlaus samskipti (rafsegulsvið á fjarskiptatíðnum) sem hugsanlega krabbameinsvaldandi í mönnum. Flokkunin var aðallega byggð á niðurstöðum nokkurra faraldsfræðilegra rannsókna sem gáfu til kynna aukna hættu á krabbameinum í heila meðal fullorðinna farsímanotenda.

Frá árinu 2011 hafa verið birtar niðurstöður faraldsfræðilegra rannsókna á notkun farsíma og hættu á heilaæxlum og öðrum æxlum í höfði. Í heildina sýna þær ekki að farsímanotkun auki áhættu á æxlum hjá notendum. Enn er ekki til mikið af gögnum um notkun farsíma í lengri tíma en 13 til 15 ár og því of snemmt að draga afdráttarlausar ályktanir um hættu á heilaæxlum hjá börnum og unglingum en séu fyrirliggjandi vísindagreinar og rit tekin saman þá sýna þau ekki aukna hættu.

Geislun hefur haldist langt fyrir neðan viðmiðunarmörk

Hnattræn þráðlaus samskipti byggja á víðfeðmu neti senda og móttakara sem nota geislun á fjarskiptatíðnum. Þráðlaus staðarnet (WLAN, Wi-Fi) nota hana einnig. Nýlegar kannanir hafa sýnt að þrátt fyrir mikla aukningu á notkun þráðlausra samskipta hefur slík geislun á svæðum ætluðum almenningi utandyra, sem og innanhúss í skólum, skrifstofum og hýbýlum fólks haldist langt fyrir neðan viðmiðunarmörk.

Yfirlýsing norrænu geislavarnastofnananna

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert