10 þúsund rassar stækkaðir

Kim Kardashian hefur verið sökuð um að hafa látið stækka …
Kim Kardashian hefur verið sökuð um að hafa látið stækka afturendann. Hún fór í röntgenmyndatöku til að afsana það.

10 þúsund lýtaaðgerðir þar sem rass fólks var stækkaður voru framkvæmdar í Bandaríkjunum á síðasta ári. Fjölgaði slíkum aðgerðum um heil 16% á milli ára, að því er fram kemur í skýrslu félags bandarískra lýtalækna.

Í frétt Huffington Post um málið segir að á sama tíma hafi borist hryllingssögur af ólöglegum rassastækkunum þar sem margt hefur farið úrskeiðis. Fólk hefur m.a. dáið í kjölfar slíkra aðgerða. 

Slíkar fréttir gætu hafa ýtt undir að fleiri fóru í aðgerðirnar hjá lýtalæknum sem hafa tilskilin leyfi og þekkingu til að stækka rassa.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert