Leysa bandarískir vísindamenn ráðgátuna?

Hópur bandarískra vísindamanna vinnur nú að aldursgreiningu hellana á Ægissíðu …
Hópur bandarískra vísindamanna vinnur nú að aldursgreiningu hellana á Ægissíðu í Rangárþingi ytra. Mynd/Aðsend

Hópur bandarískra vísindamanna vinnur nú að aldursgreiningu hellanna á Ægissíðu í Rangárþingi ytra og rannsakar hugsanlegt hlutverk þeirra í landnámi Íslands.

Þetta kemur fram í tilkynningu vegna yfirstandandi rannsókna á Hellunum við Hellu.

„Rannsakaður eru ristur í hellisveggjunum sem og setlög í hellunum. Notuð er nýstárleg aðferð við greiningu þeirra fjölmörgu og ólíku rista sem finna má í hellunum sem ekki hefur verið notuð áður hér á landi.“

Rannsóknarteymið er undir stjórn Laura Haynes, prófessors í jarðefnafræði, og Elizabeth Lastra, prófessors í listasögu miðalda við háskólann Vassar College í New York-ríki í Bandaríkjunum.

Hellarnir við Hellu hafa löngum vakið upp spurningar sagnfræðinga, fornleifafræðinga …
Hellarnir við Hellu hafa löngum vakið upp spurningar sagnfræðinga, fornleifafræðinga og jarðfræðinga. Mynd/Aðsend

Hellarnir við Hellu hafa löngum vakið upp spurningar sagnfræðinga, fornleifafræðinga og jarðfræðinga og hafa margir velt fyrir sér upphafi þeirra og tilgangi. Árið 2017 birti Árni Freyr Magnússon sagnfræðingur ritgerð þar sem fjallað er um þær aðferðir sem hægt er að nýta til að finna út aldur hellanna. 

Niðurstöður rannsókna Árna Freys voru að hægt væri að aldursgreina hellana með fjórum megin aðferðum. Kanna megi ritheimildir um þá, rannsaka áletranir og ristur á veggjum þeirra, aldursgreina mannvistarlög út frá gjósku og að lokum væri hægt að skoða gripi sem fundist hafa í einum af hellunum.

Aðferð sérfræðinganna mjög áhugaverð

„Aðferð bandarísku sérfræðinganna er mjög áhugaverð. Hún miðar að því að rannsaka risturnar á veggjunum. Þegar ég var að rannsaka þetta fyrir fimm árum gerði ég mér enga grein fyrir að svona stutt væri í að erlendir sérfræðingar hæfu rannsóknir með jafn fullkominni tækni og raun ber vitni. Þetta er tækni sem íslenskir fræðimenn hafa almennt ekki aðgang að. Það er auk þess gaman að sjá að bandarískir sérfræðingar á sviði listasögu og jarðfræði skuli velja hellana við Hellu til rannsókna,“ segir Árni Freyr.

Rannsakaður eru ristur í hellisveggjunum sem og setlög í hellunum.
Rannsakaður eru ristur í hellisveggjunum sem og setlög í hellunum. Mynd/Aðsend

Árni Freyr segist bíða spenntur eftir niðurstöðum rannsóknarinnar. Það sé ekkert launungamál að aldursgreiningar á manngerðum hellum hafi reynst íslenskum fræðimönnum erfiðar í gegnum tíðina en með bættri tækni sé hugsanlega hægt að færast nær sannleikanum um upphaf þessara merku mannvirkja.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert