Yfir 150 ný hraðhleðslustæði innan tveggja ára

Ýmir Örn Finnbogason, framkvæmdastjóri N1.
Ýmir Örn Finnbogason, framkvæmdastjóri N1. Ljósmynd/Aðsend

N1 og Tesla og hafa undirritað rammasamning sem felur í sér áform um uppbyggingu hraðhleðslustöðva við þjónustustöðvar N1 víðs vegar um landið.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá N1 en þar segir að markmið N1 með samningsgerðinni sé að auka verulega þjónustu við notendur rafbíla og byggja upp víðfeðmt net hraðhleðslustöðva á næstu tveimur árum samhliða uppbyggingu Tesla.   

„Uppbygging Tesla verður við eftirfarandi þjónustustöðvar N1: Borgarnesi, Blönduósi, Egilsstöðum, Vík, Ísafirði, Hringbraut, Kirkjubæjarklaustur, Hveragerði, Keflavík og Ártúnshöfða samhliða fjölgun hleðslustæða þar sem Tesla er nú þegar við Staðarskála og í Fossvogi.“

19 nýir hraðhleðslugarðar

Þá mun N1 setja upp níu nýja hraðhleðslugarða innan tveggja ára. Samtals eru því áform um nítján nýja hraðhleðslugarða og mun hraðhleðslustæðum við þjónustustöðvar N1 fjölga um meira en 150 á þessu tímabili,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

Með fyrirhugaðri uppbyggingu vill N1 leitast við að tryggja aðgengi allra að öruggri rafhleðslu, óháð bíltegund, greiðsluleið og álagstoppum og framfylgja þeirri stefnu félagsins að allir eigi að geta hlaðið bílinn sinn með vissu um stuttan biðtíma, örugga virkni og einfalt notendaviðmót um land allt. Hraðhleðslustöðvar Tesla verða opnar öllum rafmagnsbílum. 

„Ef við ætlum að ná raunverulegum árangri í orkuskiptum á Íslandi þá er eitt af lykilskrefunum að hraða uppbyggingu rafhleðslunets um land allt. Hleðslukvíði á ekki að vera hugtak sem aftrar einstaklingum og fyrirtækjum að veðja á nýjan orkumiðil,“ er haft eftir Ými Erni Finnbogasyni, framkvæmdastjóra N1, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert