Fjölmiðlamiðstöð opnuð

Iðnó.
Iðnó.

Íslensk stjórnvöld opnuðu í morgun fjölmiðlamiðstöð fyrir erlenda fréttamenn en um þrjátíu erlendir fréttamiðlar hafa boðað komu sína til Íslands vegna fyrirhugaðs þjóðaratkvæðis um Icesave-lögin.

Flestir blaðamennirnir eru frá Norðurlöndunum, Bretlandi og Hollandi, en einnig koma fréttamenn lengra að, svo sem frá Bandaríkjunum, Kína og Japan.

Utanríkisráðuneytið hefur umsjón með miðstöðinni sem  er á 2. hæð í Iðnó. Gert er ráð fyrir að hún verði opin fram á sunnudagskvöld.

mbl.is

Bloggað um fréttina