Fagnar viðræðum um Icesave

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna og fjármálaráðherra. stækka

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna og fjármálaráðherra. mbl.is/Ernir Eyjólfsson

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, fagnar því að Icesave-viðræður séu hafnar á ný en íslenska samninganefndin hefur setið á fundum með hollensku og bresku samninganefndinni undanfarna tvo daga. Steingrímur á ekki von á því að næstu fundir verði haldnir fyrr en í ágústlok. Skýrist það einkum af sumarleyfum í Bretlandi.

Steingrímur segir að ekki hafi verið langur aðdragandi að því að það tókst að koma fundunum á. „Undanfarnar vikur og mánuði hafi verið unnið að því að koma hreyfingu á málið og það er ánægjulegt að það tókst," segir Steingrímur í samtali við mbl.is.

Hann segir að á fundunum nú sé fyrst og fremst verið að fara yfir stöðu mála. „Auðvitað hefur verið unnin talsverð undirbúningsvinna sem menn eru að fara yfir og vonandi tekst að ákveða eitthvað um framhaldið í lok þessarar lotu," segir Steingrímur. Hann á þó ekki von á að það takist að hefja næstu lotu fyrr en undir lok sumars.

Aðspurður um hvernig hljóðið er í hollensku og bresku samninganefndunum segir Steingrímur að menn skynji að það sé jákvætt. Að minnsta kosti hafi menn verið tilbúnir í alvöru viðræður og til að hittast. „Það er áfangi," segir Steingrímur sem hitti fundinn undir kvöld í gær og þar hafi verið jákvætt hljóð í samninganefndunum.

Fjármálaráðherra á ekki von á að þrátt fyrir að ekki sé búið að mynda ríkisstjórn í Hollandi, en þar er starfandi starfsstjórn þar til stjórnarmyndunarviðræður skila árangri, þá hafi það ekki áhrif á að viðræður geti haldið áfram um Icesave-reikningana.  

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent, Þjóðaratkvæði — Fleiri fréttir

Fimmtudaginn 12. apríl

Miðvikudaginn 21. mars

Fimmtudaginn 15. mars

Miðvikudaginn 7. mars

Þriðjudaginn 20. desember

Miðvikudaginn 14. desember

Miðvikudaginn 2. nóvember

Föstudaginn 2. september

Föstudaginn 19. ágúst

Miðvikudaginn 15. júní

Þriðjudaginn 12. apríl

Miðvikudaginn 16. mars

Þriðjudaginn 15. mars

Þriðjudaginn 1. mars

Miðvikudaginn 29. desember

Miðvikudaginn 15. desember

Þriðjudaginn 14. desember

Föstudaginn 10. desember

Fimmtudaginn 9. desember

Miðvikudaginn 8. desember

Þriðjudaginn 7. desember

Mánudaginn 6. desember

Sunnudaginn 5. desember

Föstudaginn 26. nóvember

Miðvikudaginn 17. nóvember

Þriðjudaginn 16. nóvember

Mánudaginn 15. nóvember

Miðvikudaginn 3. nóvember

Þriðjudaginn 2. nóvember

Föstudaginn 17. september

Mánudaginn 6. september

Fimmtudaginn 2. september

Miðvikudaginn 25. ágúst

Föstudaginn 20. ágúst


finnur.is