Veiðimynd sumarsins 2012 er fundin

Nú er búið að fara yfir allar myndir sem voru sendar í Veiðimyndakeppnina og það voru margar myndir sem komu til greina.

Myndirnar sem fá 1.-3. verðlaun hljóta allar glæsileg verðlaun frá veiðibúðinni Vesturröst, Laugavegi 178 og við óskum vinningshöfunum til hamingju.  

1. sæti og heiðurinn af því að vera Veiðimynd sumarsins hér á veiðivefnum á Mbl.is er þessi skemmtilega mynd sem Þorleifur Pálsson sendi. Hér er ungur veiðimaður leiddur af öryggi við bakkann af afa sínum. Dómnefnd var sammála um að myndin næði fallegu augnabliki við árbakkann auk þess sem samsetning myndarinnar, sjónarhorn og dýpt gæfi myndinni mikið. Myndin fékk einróma atkvæði í fyrsta sæti.

2. sæti hlýtur þessi flotta mynd sem er tekin af urriða með rauða Frances í kjaftvikinu. Það var Pétur Alan sem tók þessa mynd og sendi í keppnina. „Þetta er ótrúlega skörp mynd, frábært augnablik og myndin ætti klárlega heima á forsíðu á einhverju flottu veiðiblaði,“ er meðal umsagna sem myndin fékk.

Í 3. sæti er mynd sem Rannveig María Jóhannesdóttir sendi og sýnir tvo unga, þolinmóða veiðimenn bíða eftir að sá stóri bíti á. „Heildaráhrifin af myndinni eru mjög góð og hún er meira að segja pínu krúttleg. Mjög vinaleg, falleg og einlæg mynd,“ er meðal þess sem dómnefnd hafði um myndina að segja.

Það bárust um 300 myndir í keppnina og við þökkum öllum sem sendu okkur myndir og hvetjum alla veiðimenn til að munda vélarnar næsta sumar því það er aldrei að vita nema við endurtökum leikinn. Góða veiði!

mbl.is

Bloggað um fréttina

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert