Greinar þriðjudaginn 3. september 2013

Fréttir

3. september 2013 | Innlendar fréttir | 66 orð

101 fasteign þinglýst í síðustu viku

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 23. ágúst til og með 29. ágúst var 101. Þar af voru 84 samningar um eignir í fjölbýli og 17 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 2.926 milljónir króna og meðalupphæð á samning 29 milljónir króna. Meira
3. september 2013 | Innlendar fréttir | 132 orð | 1 mynd

29 vilja stýra lánasjóði

Umsóknarfrestur um embætti framkvæmdastjóra Lánasjóðs íslenskra námsmanna rann út 26. ágúst sl. Mennta- og menningarmálaráðuneytinu bárust 29 umsóknir um stöðuna, þar af 18 frá konum og 11 frá körlum. Meira
3. september 2013 | Erlendar fréttir | 478 orð | 1 mynd

Aðgerðir aftur á við ræðustigi

Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Það var stjórnarher forsetans sýrlenska, Bashar al-Assad, sem stóð að baki efnavopnaárásinni í höfuðborginni Damaskus 21. ágúst síðastliðinn og varð a.m.k. Meira
3. september 2013 | Innlendar fréttir | 303 orð | 1 mynd

Alvarleg staða á Landspítalanum

Gunnar Dofri Ólafsson gunnardofri@mbl.is Sérstök áætlun er í gildi á Landspítalanum þar sem deildarlæknum á lyflækningadeild fækkaði gríðarlega um mánaðamótin. Meira
3. september 2013 | Innlendar fréttir | 319 orð | 1 mynd

Ágúst blautur og kaldur

Nýliðinn ágústmánuður í Reykjavík var sá kaldasti í 20 ár, samkvæmt yfirliti Veðurstofunnar. Meðalhiti í höfuðborginni mældist 10,1 stig í ágúst, sem er 0,2 stigum neðan meðaltals áranna 1961 til 1990 en 1,6 stigum undir meðaltali síðustu tíu ára. Meira
3. september 2013 | Erlendar fréttir | 173 orð | 1 mynd

Átti yfir höfði sér 298 ára fangelsi

Mál taívanskrar ekkju sem átti yfir höfði sér 298 ára fangelsisdóm fyrir að hafa átt í ástarsambandi við giftan mann, hefur vakið deilur um taívönsku löggjöfina gegn framhjáhaldi. Meira
3. september 2013 | Innlendar fréttir | 170 orð

Borgin endurmeti stöðuna

Baldur Arnarson Þórunn Kristjánsdóttir „Ég held að Reykjavíkurborg hljóti að horfa til þessara undirskrifta,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, aðspurður hvort hann telji að borgin eigi að endurmeta afstöðuna til... Meira
3. september 2013 | Innlendar fréttir | 167 orð | 1 mynd

Busavígslum hætt vegna ofbeldis

Nýnemar við Fjölbrautaskóla Garðabæjar voru beittir grófu ofbeldi af eldri nemendum skólans eftir að formlegri busavígslu var lokið. Meira
3. september 2013 | Innlendar fréttir | 578 orð | 3 myndir

Einfaldara regluverk styðji við hagvöxt

Baksvið Baldur Arnarson baldura@mbl.is Sérfræðingar á vegum forsætisráðuneytisins hafa frá því í sumarbyrjun unnið að tillögum sem ætlað er að gera regluverkið um atvinnulífið skilvirkara. Meira
3. september 2013 | Innlendar fréttir | 241 orð | 1 mynd

ESB vó þyngra en Færeyjar

„Ég tel að Steingrímur J. Sigfússon viðurkenni í samtali við Morgunblaðið að greining mín á makríldeilunni var rétt. ESB reynir að deila og drottna og við megum ekki gangast undir það. Meira
3. september 2013 | Innlendar fréttir | 55 orð | 1 mynd

Fleiri hafa hug á þyrluskíðaferðum

Tveir fyrrverandi landsliðsmenn í skíðaíþróttum stefna að því að bjóða upp á þyrluskíðaferðir frá Siglufirði. Á fundi með bæjarráði Fjallabyggðar óskuðu þeir eftir samningi um afnotarétt á jörðum og landsvæði í eigu sveitarfélagsins 1. mars til 20. Meira
3. september 2013 | Innlendar fréttir | 43 orð | 1 mynd

Ganga glöð og bjartsýn til móts við námið

Þessir kátu menntskælingar voru í essinu sínu þegar þeir biðu eftir strætisvagni í skýli við Menntaskólann í Reykjavík í gær, enda er full ástæða til að gleðjast nú þegar spennandi skólaár er nýhafið. Meira
3. september 2013 | Innlendar fréttir | 211 orð | 1 mynd

Heimilt að bæta við starfsmanni á Stuðlum

Heimild hefur verið gefin til að fjölga um einn starfsmann á næturvöktum á meðferðarstöðinni Stuðlum, í kjölfar rannsóknar á meintum kynferðisbrotum meðal barna sem þar voru vistuð. Meira
3. september 2013 | Innlendar fréttir | 101 orð

Helmingur styður ríkisstjórnina

Í nýjum þjóðarpúlsi Gallup segist rétt tæpur helmingur styðja ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks en stuðningur við stjórnina hefur minnkað um 13 prósentustig frá kosningum í vor. Meira
3. september 2013 | Innlendar fréttir | 946 orð | 3 myndir

Heyfengur þykir í meðallagi

Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Það viðraði vel til heyskapar á Austurlandi í sumar en heyfengur er lítill á sumum bæjum vegna kals og þurrka. Meira
3. september 2013 | Innlendar fréttir | 225 orð | 1 mynd

Hljóp 168 kílómetra í Sviss

„Það var ævintýralegt að koma í mark,“ segir Helga Þóra Jónasdóttir, þrítug hlaupadrottning og nemi á þriðja ári í sjúkraþjálfun í Háskóla Íslands. Meira
3. september 2013 | Erlendar fréttir | 226 orð

Holræsaræningjar handteknir

Spænska lögreglan tilkynnti í gær að hópur tíu bankaræningja hefði verið handtekinn í Madríd. Bankaræningjarnir notuðu holræsi borgarinnar til að komast inn í bankaútibú og flýja með ránsfeng sinn. Meira
3. september 2013 | Innlendar fréttir | 460 orð | 2 myndir

Hringborðið heillar hungraða

Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Um þessar mundir eru um 40 ár síðan Þráinn Kristjánsson hóf rekstur steikhússins The Round Table í Winnipeg í Kanada og af því tilefni verða ýmsar uppákomur á veitingastaðnum á næstunni. Meira
3. september 2013 | Innlendar fréttir | 63 orð | 1 mynd

Íslensk sauðkind við veiðarfærin

Vestmannaeyjar þekkja flestir fyrir öflugan sjávarútveg, Tyrkjaránið, eldgosið 1973, frækna fótboltamenn og vitaskuld þjóðhátíð. Fleira má þó finna í Eyjum og úteyjabúskapur hefur ávallt verið stundaður þar og er fé þá flutt í t.d. Elliðaey og Álsey. Meira
3. september 2013 | Erlendar fréttir | 401 orð | 1 mynd

Jafnar kanslarakappræður

Karl Blöndal kbl@mbl.is Engin rothögg voru greidd í kappræðum Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, og Peers Steinbrücks, kanslaraefnis sósíaldemókrata, á sunnudag. Meira
3. september 2013 | Innlendar fréttir | 29 orð | 1 mynd

Kristinn

Nýnemadagar Margt var um manninn á Háskólatorgi í gær, á fyrsta degi nýnema- og stúdentadaga í Háskóla Íslands. Um 3.500 nemendur hefja nám í skólanum nú í upphafi... Meira
3. september 2013 | Innlendar fréttir | 451 orð | 2 myndir

Launin hækkuðu mismikið

Baldur Arnarson baldura@mbl.is Laun á almennum vinnumarkaði hafa hækkað mun meira síðan í ársbyrjun 2009 en hjá opinberum starfsmönnum. Meira
3. september 2013 | Innlendar fréttir | 117 orð | 1 mynd

Merkingarnar fjarlægðar

Starfsmenn hverfisstöðvar Reykjavíkurborgar við Njarðargötu unnu við það að fjarlægja umdeildar merkingar á Hofsvallagötu í gær. Bjarni Brynjólfsson, upplýsingastjóri Reykjavíkurborgar, segir að vinnan hafi verið á misskilningi byggð. Meira
3. september 2013 | Innlendar fréttir | 278 orð | 1 mynd

Mikil björgunaræfing á Grænlandshafi

Fjölþjóðlega leitar- og björgunaræfingin SAREX Greenland Sea 2013 hófst í gær en æfingin fer fram dagana 2.-6. september, norðaustarlega á Grænlandshafi, milli Daneborg og Meistaravíkur. Meira
3. september 2013 | Innlendar fréttir | 203 orð | 1 mynd

Ráðherrar ræddu stöðuna í Sýrlandi

Baldur Arnarson baldura@mbl.is Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra ræddi stöðuna í Sýrlandi ásamt sjö öðrum utanríkisráðherrum Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna á fundi í Svíþjóð í gær. Meira
3. september 2013 | Innlendar fréttir | 515 orð | 1 mynd

Rektor biðst afsökunar á verklagsreglum

Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Ég biðst afsökunar fyrir hönd háskólans á að verklagsreglur hafi ekki verið nægilega skýrar sem leiddi til sárinda,“ segir Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands. Meira
3. september 2013 | Innlendar fréttir | 150 orð | 1 mynd

Safnið vill Gísla heim

Stjórn Minjasafnsins á Hnjóti í Örlygshöfn leitar nú allra leiða til að fjármagna kaup á brjóstmynd af Gísla á Uppsölum eftir myndlistarkonuna Ríkeyju Ingimundardóttur en hún er nú til sýnis á Patreksfirði. Meira
3. september 2013 | Innlendar fréttir | 448 orð | 2 myndir

Samkeppni í þyrluskíðaferðum

Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Jóhann Haukur Hafstein og Björgvin Björgvinsson, fyrrverandi landsliðsmenn í skíðaíþróttum, hafa stofnað fyrirtækið Viking Heliskiing og stefna að því að bjóða upp á þyrluskíðaferðir frá Siglufirði. Byrjað verður í mars. Meira
3. september 2013 | Innlendar fréttir | 543 orð | 1 mynd

Samtakamátturinn mikill

Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl. Meira
3. september 2013 | Innlendar fréttir | 289 orð | 1 mynd

Síldin er stór og falleg

Síldveiðar ganga vel að sögn Róberts Axels Axelssonar, skipstjóra á Ingunni AK 150, en hún er við veiðar austan við land í grennd við Vopnafjarðargrunn. „Síldin er bæði stór og falleg en nokkuð dreifð hérna á svæðinu. Meira
3. september 2013 | Innlendar fréttir | 61 orð | 1 mynd

Sjóböð og heilsuhótel á Húsavík

Bæjarráð Norðurþings samþykkti nýverið að fara í viðræður við félagið Sjóböð ehf. um að útvega lóð undir fyrirhugaðan rekstur sjóbaðsstaðar á Höfðanum, en verkefnið hefur verið í þróun í nokkur ár. Stærð baðsvæðis er áætluð nærri 1. Meira
3. september 2013 | Innlendar fréttir | 374 orð | 2 myndir

Sjóböð og hótel á Húsavík

Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Bæjarráð Norðurþings samþykkti nýverið að fara í viðræður við félagið Sjóböð ehf. um að útvega lóð undir fyrirhugaðan rekstur sjóbaðsstaðar á Húsavíkurhöfða, eða Höfðanum eins og heimamenn tala gjarnan um. Meira
3. september 2013 | Innlendar fréttir | 116 orð | 1 mynd

Skemmtiferðaskip nær daglegir gestir

Skemmtiferðaskip hafa verið áberandi í Reykjavíkurhöfn í sumar og frá sunnudegi til sunnudags, 1. til 8. september, eru skráðar átta komur til höfuðborgarinnar. Bremen, eitt minnsta skemmtiferðaskipið sem kemur til landsins í sumar (6. Meira
3. september 2013 | Erlendar fréttir | 116 orð | 1 mynd

Stofnandi Megaupload og Mega hyggst bjóða fram í þingkosningum á næsta ári

Hinn litríki Kim Dotcom, stofnandi skráaskiptasíðnanna Megaupload og Mega, tilkynnti í gær að hann hygðist stofna nýtt stjórnmálaafl og bjóða fram í þingkosningunum á Nýja-Sjálandi á næsta ári. Á stefnuskrá flokksins verður m.a. Meira
3. september 2013 | Erlendar fréttir | 110 orð | 1 mynd

Sækja í eldri lög um fóstureyðingar

Stjórnvöld á Spáni, undir forystu forsætisráðherrans Mariano Rajoy, hyggjast fella úr gildi löggjöf frá 2010 sem heimilar fóstureyðingar fram á 14. Meira
3. september 2013 | Innlendar fréttir | 193 orð | 1 mynd

Söguleg stofnstærð

Gísli Víkingsson, hvalasérfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, segir að hnúfubakurinn í kringum Ísland sé kominn í sögulega stærð. „Á tímabili var stofninn mjög veikur og fá dýr eftir í honum. Meira
3. september 2013 | Innlendar fréttir | 252 orð | 1 mynd

Tók þátt í tímamótarannsókn á krabbameini

„Þetta er áhugaverð rannsókn. Meira
3. september 2013 | Innlendar fréttir | 184 orð | 1 mynd

Tvær vikur í aðalmeðferð

Aðalmeðferð í Al-Thani-málinu svonefnda hefst 4. nóvember næstkomandi í Héraðsdómi Reykjavíkur og stendur í tvær vikur. Um fimmtíu vitni hafa verið boðuð til að mæta fyrir dóm í málinu. Meira
3. september 2013 | Innlendar fréttir | 342 orð | 1 mynd

Tæplega helmingur sjúkraflugs er forgangsflug

„Tíminn í sjúkraflugi og í sjúkrabíl flokkast sem óvirkur tími til hjálpar sjúklingnum. Meira
3. september 2013 | Innlendar fréttir | 103 orð | 1 mynd

Vona að heyfengur dugi veturinn

„Á þeim svæðum þar sem var bæði kal og þurrkar hafa bændur ekki náð miklum heyfeng og reikna með að þurfa að fækka skepnum eitthvað til að mæta því,“ segir Guðfinna Harpa Árnadóttir, ráðunautur hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins á... Meira

Ritstjórnargreinar

3. september 2013 | Leiðarar | 216 orð

Kurteis fréttahaukur

David Frost var í fremstu röð fréttaskýrenda og spyrjenda í hálfa öld Meira
3. september 2013 | Staksteinar | 180 orð | 2 myndir

Leynimakk gegn frændþjóðinni

Það lagðist lítið fyrir kappana í vinstristjórninni þegar Færeyingar áttu í þrengingum. Færeyingar stóðu þéttast við bakið á Íslendingum þegar á þurfti að halda haustið 2008 og hafa margoft sýnt að þar fer ekki aðeins frændþjóð heldur einnig vinaþjóð. Meira
3. september 2013 | Leiðarar | 443 orð

Vinstri slagsíðan veikir grundvöllinn

Vörn „RÚV“ við vaxandi gagnrýni er þóttafull Meira

Menning

3. september 2013 | Kvikmyndir | 537 orð | 2 myndir

Af ástum, afbrýði og frýsandi frygð

Leikstjórn og handrit: Benedikt Erlingsson. Aðalhlutverk: Ingvar E. Sigurðsson, Charlotte Bøving, Steinn Ármann Magnússon, Kjartan Ragnarsson, Sigríður María Egilsdóttir og Juan Camillo Roman Estrada. 85 mín. Ísland, 2013. Meira
3. september 2013 | Leiklist | 651 orð | 2 myndir

Andleg upphafning eða frjálst fall?

Eiðurinn og eitthvað eftir Guðberg Bergsson. Leikarar: Sveinn Ólafur Gunnarsson, Sólveig Guðmundsdóttir, Erling Jóhannesson og Benedikt Karl Gröndal. Leikmynd: Eva Vala Guðjónsdóttir og Bergur Þór Ingólfsson. Búningar: Eva Vala Guðjónsdóttir. Meira
3. september 2013 | Myndlist | 56 orð | 1 mynd

Frá Edinborg til Edinborgarhúss

Skoski tónlistarmaðurinn Simon Kempston frá Edinborg heldur tónleika í húsinu sem kennt er við heimaborg hans, Edinborgarhúsinu, á Ísafirði í kvöld kl. 20.30. Kempston mun vera mikilsvirtur lagahöfundur og hefur hlotið verðlaun fyrir listsköpun sína. Meira
3. september 2013 | Myndlist | 91 orð | 1 mynd

Grænlenskar teiknimyndir á Qanga

Qanga nefnist sýning sem opnuð verður í Norræna húsinu í dag kl. 11. Sýningin samanstendur af teikningum eftir grænlenska listamanninn Nuka K. Godtfredsen, 31 vatnslitaverki úr teiknimyndaseríu sem hann gerði fyrir Þjóðminjsafnið í Danmörku. Meira
3. september 2013 | Kvikmyndir | 126 orð | 1 mynd

Ísland verður mikilvægur tökustaður

Næsta kvikmynd hins víðfræga leikstjóra Christophers Nolans, Interstellar, eða Milli stjarna, verður tekin upp að stórum hluta hér á landi ef marka má frétt á vef kvikmyndaritsins Empire. Meira
3. september 2013 | Tónlist | 484 orð | 2 myndir

Leiftrandi færni, leikandi gleði

Ljatosjynskíj: Grazyna (1955). Prokofjev: Píanókonsert nr. 1. Bartók: Konsert fyrir hljómsveit. Khatia Buniatisjvili píanó; I, Culture Orchestra. Stjórnandi: Kirill Karabits. Fimmtudaginn 29.8. kl. 19:30. Meira
3. september 2013 | Kvikmyndir | 39 orð | 1 mynd

Miyazaki sest í helgan stein

Japanski teiknimyndaleikstjórinn Hayao Miyazaki er sestur í helgan stein, 72 ára að aldri. Frá þessu var greint á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum sem nú stendur yfir. Meira
3. september 2013 | Fjölmiðlar | 185 orð | 1 mynd

Norskt fjölskyldudrama í helgarlok

Ég játa það fúslega að þegar haustið leggst yfir af fullum þunga, þá hlakka ég svolítið til sjónvarpsstunda í sófanum. Meira
3. september 2013 | Tónlist | 40 orð | 1 mynd

Olding og félagar leika á Kex Hosteli

Sænsk-íslenskur kvartett saxófónleikarans Sigurðar Flosasonar og gítarleikarans Hans Olding heldur tónleika í kvöld kl. 20.30 á Kex Hosteli. Með Sigurði og Olding leika Þorgrímur Jónsson á kontrabassa og Einar Scheving á trommur. Meira
3. september 2013 | Leiklist | 43 orð | 1 mynd

Opið hús í útvarpsleikhúsi NRK

Útvarpsleikhús norska ríkisútvarpsins, NRK, hefur tryggt sér réttinn á leikriti Hrafnhildar Hagalín, Opið hús, sem frumflutt var í Útvarpsleikhúsi RÚV síðasta vetur og undirbýr nú eigin upptökur á því. Meira
3. september 2013 | Tónlist | 332 orð | 1 mynd

Safnað fyrir endalausum strengjakvartett

Tónskáldið og tónlistarmaðurinn Úlfur Eldjárn fagnar 37 ára afmæli í dag og heldur m.a. upp á það með því að efna til hópfjármögnunar á vefnum Karolinafund.com fyrir gagnvirkt tónverk sitt, Strengjakvartett nr. . Meira
3. september 2013 | Kvikmyndir | 103 orð | 2 myndir

Sótt í hrollinn

Bandaríska hrollvekjan The Conjuring er sú sem mestum miðasölutekjum skilaði yfir helgina í kvikmyndahúsum hér á landi. Meira
3. september 2013 | Tónlist | 291 orð | 2 myndir

Syngur aríurnar sem eru í uppáhaldi núna

Hádegistónleikaröð Hafnarborgar hefst að nýju í dag með tónleikum Sólrúnar Bragadóttur. Sólrún kemur fram ásamt Antoníu Hevesi píanóleikara og flytja þær meðal annars aríur eftir óperutónskáldin Mascagni, Verdi og Bellini. Meira
3. september 2013 | Tónlist | 153 orð | 1 mynd

Æfingar hafnar á Carmen

Einhver þekktasta og vinsælasta ópera allra tíma, Carmen eftir Georges Bizet, í uppfærslu Íslensku óperunnar, verður frumsýnd 19. október nk. og hófust æfingar á henni í gær. Meira

Umræðan

3. september 2013 | Aðsent efni | 235 orð

Af bílum, óveðri og Íslendingum

Það urðu kaflaskil hjá Pétri Stefánssyni sem seldi Elöntruna sína til Eyjafjarðar: Til söknuðar ég sárrar finn, (sálar þyngist byrði) seldi ég besta bílinn minn bónda í Eyjafirði. Meira
3. september 2013 | Aðsent efni | 525 orð | 1 mynd

Af rugli um flugvöllinn í Vatnsmýri

Eftir Sigurgeir Jónsson: "Reyndar ættum við, sem viljum áfram hafa flugvöllinn á sínum stað, að gleðjast yfir svona upphlaupum." Meira
3. september 2013 | Aðsent efni | 680 orð | 1 mynd

Dýrt spaug – grátt gaman

Eftir Ernu Arngrímsdóttur: "Borgin má ekki komast upp með hroka og eftirgjöf á þrifum." Meira
3. september 2013 | Aðsent efni | 695 orð | 1 mynd

Hvað er til ráða?

Eftir Halldór Jónsson: "Er hér einhver framtíð fyrir ungt fólk? Allt vegna umsvifa örfárra íslenskra fjármálafyrirtækja?" Meira
3. september 2013 | Pistlar | 444 orð | 1 mynd

Kyndum undir kynsældinni

Í viðtölum sem birtust hér í Morgunblaðinu á dögunum lýstu stjórnendur tveggja framhaldsskóla á Vesturlandi því hvernig starfshættir þar væru að breytast. Meira
3. september 2013 | Aðsent efni | 1630 orð | 1 mynd

Reynslan hefur kennt mér að efast um elítuna í Brussel

Eftir Mörtu Andreasen: "Ég varð furðu lostin á skorti á gagnsæi og eftirliti með eyðslu á skattfé almennings en þó enn meir á staðföstum ásetningi kerfiskarla um að koma í veg fyrir umbætur." Meira
3. september 2013 | Aðsent efni | 237 orð | 1 mynd

Úlfarsárdalurinn

Eftir Sigurjón Arnórsson: "Þetta nýja skipulag gerir einungis ráð fyrir 3.000 manna byggð og kemur í veg fyrir að íbúar fái þá grunnþjónustu sem lagt var upp með..." Meira
3. september 2013 | Velvakandi | 129 orð

Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is

Meira um Gunnar á Völlum Ég get ekki annað en tekið undir það sem lesendur hafa skrifað undanfarið um Gunnar á Völlum. Mér finnst þátturinn ömurlegur og á ótrúlega lágu plani. Ekki sæmandi fyrir RÚV að stunda slíka þáttargerð. Meira

Minningargreinar

3. september 2013 | Minningargreinar | 331 orð | 1 mynd

Egill Stefánsson

Egill Stefánsson fæddist í Bolungarvík 25. ágúst 1950. Hann lést 9. ágúst 2013. Útför Egils fór fram 16. ágúst 2013. Meira  Kaupa minningabók
3. september 2013 | Minningargreinar | 2367 orð | 1 mynd

Elín Sóley Kristinsdóttir

Elín Sóley Kristinsdóttir fæddist á bænum Hjalla (fyrir ofan) á Dalvík 6. október 1931. Hún andaðist á Hjúkrunarheimilinu Skjóli 23. ágúst 2013. Meira  Kaupa minningabók
3. september 2013 | Minningargreinar | 857 orð | 2 myndir

Gunnar Júlíus Guðmundsson

Gunnar Júlíus Guðmundsson fæddist 22. september 1984. Hann lést á heimili sínu 16. ágúst 2013. Foreldrar hans eru Guðmundur J. Júlíusson og Þórný Elín Ásmundsdóttir sem er látin. Meira  Kaupa minningabók
3. september 2013 | Minningargreinar | 526 orð | 1 mynd

Ingimundur Ingimundarson

Ingimundur Ingimundarson fæddist á Efri-Ey í Meðallandi 2. júlí 1925. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi 18. ágúst 2013. Útför Ingimundar fór fram frá Digraneskirkju 27. ágúst 2013. Meira  Kaupa minningabók
3. september 2013 | Minningargreinar | 1606 orð | 1 mynd

Ingólfur Arnarson Benediktsson

Ingólfur Arnarson Benediktsson fæddist á Reyðarfirði 6. janúar 1932. Hann lést á heimili sínu 26. ágúst 2013. Hann var sonur hjónanna Benedikts Einarssonar, f. 31. maí 1894, d. 16. jan. 1972, og Bjargar Bjarnadóttur, f. 21. júlí 1892, d. 10. mars 1985. Meira  Kaupa minningabók
3. september 2013 | Minningargreinar | 596 orð | 1 mynd

Jakob Ágústsson

Jakob Ágústsson fæddist á Blönduósi 14. mars 1944. Hann andaðist á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund 18. ágúst 2013. Hann var sonur Ágústs Jónssonar, bifreiðastjóra á Blönduósi, f. 27.9. 1901 í Skálavík, og Margrétar Jónsdóttur, f. 23.1. Meira  Kaupa minningabók
3. september 2013 | Minningargreinar | 280 orð | 1 mynd

Jónas Viðar Sveinsson

Jónas Viðar Sveinsson fæddist á Akureyri 2. febrúar 1962. Hann lést á Landspítalanum í Reykjavík 12. ágúst 2013. Útför Jónasar fór fram frá Akureyrarkirkju 23. ágúst 2013. Meira  Kaupa minningabók
3. september 2013 | Minningargreinar | 3257 orð | 1 mynd

Lilja Guðmundsdóttir

Lilja Guðmundsdóttir fæddist á Ystu-Görðum í Kolbeinsstaðahreppi á Snæfellsnesi 10. mars 1926. Hún lést á Sjúkrahúsi Akraness 24. ágúst 2013. Meira  Kaupa minningabók
3. september 2013 | Minningargreinar | 365 orð | 1 mynd

Selma Jónsdóttir

Selma Polly Jónsdóttir fæddist í Reykjavík 30. desember 1940. Hún andaðist á Landspítalanum við Hringbraut 2. ágúst 2013. Útför Selmu fór fram frá Bústaðakirkju 13. ágúst 2013. Meira  Kaupa minningabók
3. september 2013 | Minningargreinar | 1157 orð | 1 mynd

Svavar Bragi Bjarnason

Svavar Bragi Bjarnason fæddist á Kollafossi í V-Húnavatnssýslu 25. nóvember 1931. Hann lést á heimili sínu 23. ágúst 2013. Foreldrar hans voru Margrét Ingibjörg Sigfúsdóttir kennari, f. 29.9. 1891, d. 12.2. 1974 og Bjarni Björnsson bóndi, f. 21.2. Meira  Kaupa minningabók

Viðskipti

3. september 2013 | Viðskiptafréttir | 645 orð | 3 myndir

Erlendur rekstur tryggður

Hörður Ægisson Þorsteinn Ásgrímsson Samtímis kaupum Landsbankans á verktakafyrirtækinu Ístaki var gengið frá samningum við erlend tryggingafélög um verktryggingar erlendis. Meira
3. september 2013 | Viðskiptafréttir | 70 orð | 1 mynd

Forstjóri Pepsi kemur hingað

Indra Nooyi, forstjóri PepsiCo og ein valdamesta kona heims mun heimsækja Ísland á næstunni, en hún ætlar að koma á 100 ára afmælisráðstefnu Ölgerðarinnar sem haldin verður 1. nóvember. Samkvæmt heimildum mbl. Meira
3. september 2013 | Viðskiptafréttir | 276 orð | 1 mynd

Laun hafa hækkað um 74,6%

Frá fyrsta ársfjórðungi 2005 til fyrsta ársfjórðungs 2013 hafa regluleg laun á íslenskum vinnumarkaði hækkað um 74,6%, þar af 76,8% á almennum vinnumarkaði, 69,4% hjá ríkisstarfsmönnum og 68,3% hjá starfsmönnum sveitarfélaga. Meira
3. september 2013 | Viðskiptafréttir | 84 orð

Radisson Blu 1919 valið fremsta hótel landsins

Radisson Blu 1919 hótel var valið fremsta hótel landsins á verðlaunahátíð World Travel Awards í Evrópu um helgina. 101 hótel var valið fremsta lúxushótel landsins og Hilton Reykjavík Nordica hótel valið fremsta viðskiptahótelið. Meira
3. september 2013 | Viðskiptafréttir | 155 orð | 1 mynd

Risasala Vodafone sögð vel á veg komin

Forsvarsmenn Vodafone greindu frá því í gær að viðræður um sölu á 45% eignarhlut fyrirtækisins í bandaríska fjarskiptafyrirtækinu Verizon Wireless til Verizon Communications væru vel á veg komnar. Meira
3. september 2013 | Viðskiptafréttir | 220 orð | 1 mynd

Sátt SKE við Skipti staðfest

Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest sátt sem Samkeppniseftirlitið gerði við Skipti hinn 26. mars síðastliðinn. Í fréttatilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu um staðfestingu áfrýjunarnefndar samkeppnismála segir m.a. Meira
3. september 2013 | Viðskiptafréttir | 96 orð

Viðskipti fyrir 18,8 ma

Viðskipti með hlutabréf í Kauphöllinni í júní námu 18.818 milljónum eða 896 milljónum á dag. Það er 77% hækkun á milli ára, samanborið við 456 milljóna króna veltu á dag í júní 2012, samkvæmt því sem fram kemur í yfirliti NASDAQ OMX í gær. Meira

Daglegt líf

3. september 2013 | Daglegt líf | 105 orð | 1 mynd

Blásið á bábiljur um heilsuna

Ekki er allt sem sýnist og á það vel við innan heilsugeirans. Á vefsíðunni Quackwatch.com eru ýmsar upplýsingar um vafasöm heilsufræði og sannindi sem eru á gráu svæði. Meira
3. september 2013 | Daglegt líf | 158 orð | 1 mynd

Börn og foreldrar hreyfa sig saman í Íþróttaskóla

Íþróttaskóli fjölskyldunnar er nýjung í íþróttaskólaflóru landsins en þar er lögð áhersla á að fjölskyldumeðlimir, bæði börn og fullorðnir, komi saman til að stunda skemmtilega og fjölbreytta hreyfingu. Meira
3. september 2013 | Daglegt líf | 309 orð | 1 mynd

Fólk fer út á götu til að hvetja

Signý Gunnarsdóttir signy@mbl.is Brúarhlaupið á Selfossi verður haldið 23. árið í röð um næstu helgi. Það var fyrst haldið árið 1991 í tilefni hundrað ára afmælis brúar yfir Ölfusá við Selfoss. Meira
3. september 2013 | Daglegt líf | 699 orð | 3 myndir

Í göngu á Spáni á breytingaskeiði

Margrét Jónsdóttir Njarðvík rekur ferðaskrifstofuna Mundo sem hefur undanfarin ár verið með sumarbúðir á Spáni. Mundo mun í vetur bjóða upp á nýjungar í ferðum til Spánar þar sem saman fara menntun, skemmtun, menning og þjálfun. Meira
3. september 2013 | Daglegt líf | 142 orð | 1 mynd

Styrktar- og liðleikanámskeið fyrir langhlaupara í vetur

Í vetur ætlar Sjúkraþjálfun Reykjavíkur að bjóða upp á styrktar- og liðleikaþjálfun sem er sérhæfð fyrir langhlaupara og hefur verið þróuð af Gauta Grétarssyni sjúkraþjálfara. Meira
3. september 2013 | Daglegt líf | 137 orð | 1 mynd

takið þátt í Reykjanesmaraþoni

Reykjanesmaraþon verður haldið á morgun miðvikudag. Það er árlegur viðburður sem fram fer í tengslum við Ljósanótt í Reykjanesbæ, sem er ein stærsta fjölskylduskemmtun landsins. Meira

Fastir þættir

3. september 2013 | Fastir þættir | 148 orð | 1 mynd

1. Rf3 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. cxd5 Rxd5 5. Db3 Rb6 6. d4 Bg7 7. Bf4...

1. Rf3 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. cxd5 Rxd5 5. Db3 Rb6 6. d4 Bg7 7. Bf4 Be6 8. Da3 Rc6 9. e3 a5 10. Bb5 0-0 11. Bxc6 bxc6 12. 0-0 Rc4 13. Dc5 Rxb2 14. Dxc6 Rd3 15. Bg3 Rb4 16. Dc5 Ra6 17. Db5 c5 18. Hfd1 Bd7 19. De2 cxd4 20. Rxd4 a4 21. e4 Da5 22. Meira
3. september 2013 | Árnað heilla | 24 orð | 1 mynd

Akranes Viktoría Ósk fæddist 12. desember. Hún vó 3.960 g og var 54 cm...

Akranes Viktoría Ósk fæddist 12. desember. Hún vó 3.960 g og var 54 cm löng. Foreldrar hennar eru Lena Gunnlaugsdóttir og Steinar Helgason... Meira
3. september 2013 | Í dag | 30 orð | 1 mynd

Benedikta Björk , Jóhannes Jökull, Katla Bríet, Embla Sigfríð, Hekla...

Benedikta Björk , Jóhannes Jökull, Katla Bríet, Embla Sigfríð, Hekla Margrét og Sveinfríður Sigrún færðu Barnaspítala Hringsins, 5.329 krónur, sem þau höfðu safnað með hlutaveltu fyrir utan Miðbæ við... Meira
3. september 2013 | Árnað heilla | 52 orð | 1 mynd

Bjarni Atlason

30 ára Bjarni ólst upp á Þórustöðum í Eyjafirði, lauk framhaldsnámi í söng og er einsöngvari, vaktstjóri hjá Sorpu og frístundabóndi á Tindum á Kjalarnesi. Maki: Telma Dögg Ólafsdóttir, f. 1987, sjúkraliði. Börn: Jómundur Atli, f. Meira
3. september 2013 | Árnað heilla | 49 orð | 1 mynd

Elísabet Brynjarsdóttir

30 ára Elísabet ólst upp í Reykjavík og Bandaríkjunum, er nú búsett í Reykjavík, lauk prófum frá Viðskipta- og tölvuskólanum (nú NVT) og er gjaldkeri hjá Íslandspósti. Maki: Þorsteinn Sölvason, f. 1971, leigubílstjóri. Meira
3. september 2013 | Fastir þættir | 1335 orð | 13 myndir

Göldróttu smyrslin frá Tálknafirði

Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Tálknafjörður er kannski ekki fyrsti staðurinn sem kemur upp í huga fólks þegar snyrtivöruframleiðsla er til umræðu. Meira
3. september 2013 | Árnað heilla | 636 orð | 3 myndir

Hafnaði atvinnutilboði frá Chelsea árið 1950

Bjarni fæddist í Reykjavík 3.9. 1928 og ólst upp við Stýrimannastíginn í Vesturbænum. Hann var auk þess í sveit flest sumur, var í vegavinnu á Vatnsskarði og á Langadalsströnd við Ísafjarðardjúp og eitt sumar á síld á Skógafossi frá Vestmannaeyjum. Meira
3. september 2013 | Fastir þættir | 160 orð

Hagsýni. S-AV Norður &spade;1087 &heart;65 ⋄K5 &klubs;ÁDG1072...

Hagsýni. S-AV Norður &spade;1087 &heart;65 ⋄K5 &klubs;ÁDG1072 Vestur Austur &spade;DG96 &spade;K432 &heart;G1073 &heart;9842 ⋄8764 ⋄ÁD10 &klubs;3 &klubs;K8 Suður &spade;Á5 &heart;ÁKD ⋄G932 &klubs;9654 Suður spilar 3G. Meira
3. september 2013 | Fastir þættir | 197 orð

Haustdagskrá Bridsfélags Reykjavíkur BR hefur sett saman dagskrá fyrir...

Haustdagskrá Bridsfélags Reykjavíkur BR hefur sett saman dagskrá fyrir haustið en keppnin hefst 17. september nk. með þriggja kvölda tvímenningi sem tengdur er Hótel Hamri. 8. okróber hefst fjögurra kvölda hraðsveitakeppni sem stendur út október. Meira
3. september 2013 | Árnað heilla | 51 orð | 1 mynd

Ingibjörg Þ. Jóhannesdóttir

30 ára Ingibjörg ólst upp í Hafnarfirði en er búsett í Kópavogi, lék knattspyrnu með Haukum og í Bandaríkjunum, lauk BSc.- prófi í stærðfræði í Bandaríkjunum, prófum í heilbrigðisverkfræði frá HR og starfar nú hjá Nox Medical. Meira
3. september 2013 | Árnað heilla | 221 orð | 1 mynd

Í ferðalag með Bændaferðum

Emma Eyþórsdóttir, dósent við Landbúnaðarháskóla Íslands, er 60 ára í dag. „Ég ætla ekki að gera neitt nema láta eiginmanninn bjóða mér út að borða,“ segir afmælisbarn dagsins. Brynjólfur G. Meira
3. september 2013 | Í dag | 44 orð

Málið

Að eiga e-ð skilið er að verðskulda e-ð . Segja má hvort sem er: Hún á þakkir skilið eða hún á þakkir skildar . Hún á þakkir „skyldar“ – með y-i – er misskilningur, kannski sprottinn af því að skylt þyki að þakka... Meira
3. september 2013 | Í dag | 19 orð

Orð dagsins: Ef þér fyrirgefið mönnum misgjörðir þeirra, þá mun og faðir...

Orð dagsins: Ef þér fyrirgefið mönnum misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yðar himneskur fyrirgefa yður. (Matt. 6, 14. Meira
3. september 2013 | Árnað heilla | 236 orð | 1 mynd

Sigurður Guðmundsson

Sigurður Guðmundsson, skólameistari við Menntaskólann á Akureyri, var fæddur 3.9. 1878 á Æsustöðum í Langadal í Austur-Húnavatnssýslu. Foreldrar hans voru Guðmundur, hreppstjóri á Æsustöðum og í Mjóadal, og k.h. Meira
3. september 2013 | Árnað heilla | 183 orð

Til hamingju með daginn

90 ára Elínborg Pálsdóttir Margrét S. Kjærnested Níels Árnason 85 ára Aðalbjörg Baldursdóttir 80 ára Agnar Hermannsson Gunnar Zebitz Gunnlaugur Magnússon Sigurbjörg H. Meira
3. september 2013 | Fastir þættir | 312 orð

Víkverji

Því er stundum haldið fram að Íslendingar geti aðeins talað um eitt, þ.e. veðrið. Allir kannast t.d. við þá stund í leigubílnum, ef veðrið er gott, að sagt er við leigubílstjórann: „Jæja, það er blessuð blíðan! Meira
3. september 2013 | Í dag | 162 orð | 1 mynd

Þetta gerðist...

3. september 1939 Aukafréttir voru í Ríkisútvarpinu kl. 11.48 á sunnudagsmorgni þar sem flutt var sú fregn að Bretar hefðu sagt Þjóðverjum stríð á hendur. Síðari heimsstyrjöldin var hafin. Meira

Íþróttir

3. september 2013 | Íþróttir | 494 orð | 2 myndir

Birki skipt til helminga

Fótbolti Sindri Sverrisson sindris@mbl. Meira
3. september 2013 | Íþróttir | 73 orð | 1 mynd

Bolt mætir Gatlin í Belgíu

Usain Bolt, sprettharðasti maður sögunnar, hefur ákveðið að keppa í 100 metra hlaupi í stað 200 metra hlaups á síðasta Demantamóti ársins í frjálsum íþróttum sem fram fer í Brussel á föstudagskvöld. Meira
3. september 2013 | Íþróttir | 113 orð | 1 mynd

Danmörk Nordsjælland – GOG 23:35 • Atli Ævar Ingólfsson...

Danmörk Nordsjælland – GOG 23:35 • Atli Ævar Ingólfsson skoraði eitt mark fyrir Nordsjælland og Anton Rúnarsson eitt. • Snorri Steinn Guðjónsson skoraði eitt mark fyrir GOG. Meira
3. september 2013 | Íþróttir | 48 orð | 1 mynd

Deildabikar karla B-riðill: Þór Þ. – Njarðvík 78:93 Stigahæstir í...

Deildabikar karla B-riðill: Þór Þ. – Njarðvík 78:93 Stigahæstir í Þór: Nemanja Sovic 21, Baldur Þór Ragnarsson 17. Stigahæstir í Njarðvík: Elvar Már Friðriksson 19, Hjörtur Hrafn Einarsson 16. *Fjölnir og Haukar eru einnig í B-riðli. Meira
3. september 2013 | Íþróttir | 236 orð | 1 mynd

Eiður Smári ekki sáttur

„Við fengum eitthvað af fyrirspurnum og símtölum varðandi Eið Smára en tíminn var naumur og Eiður farinn til móts við landsliðið. Meira
3. september 2013 | Íþróttir | 311 orð | 1 mynd

Íshokkímenn byrja tímabilið á stórleik

Íslandsmótið í íshokkíi hefst í kvöld með tveimur leikjum en keppni fer af stað bæði í karla- og kvennaflokki í kvöld. Flautað verður til leiks hjá kvennaliðum SR og SA í Skautahöllinni í Laugardal kl. 19.30 og tíu mínútum síðar, kl. 19. Meira
3. september 2013 | Íþróttir | 196 orð | 1 mynd

Júlían fékk brons á HM unglinga

Júlían Jóhann Karl Jóhannsson vann bronsverðlaun í réttstöðulyftu á heimsmeistaramóti unglinga í kraftlyftingum sem fram fór í Texas í Bandaríkjunum um helgina, lyfti 320 kg. Meira
3. september 2013 | Íþróttir | 163 orð | 1 mynd

Kaká kominn aftur til Mílanó

„Ég er að fara heim,“ sagði brasilíski knattspyrnumaðurnn Kaká við fréttamenn á flugvellinum í Madrid í gær áður en hann hélt til Mílanó til að skrifa undir tveggja ára samning við sjöfalda Evrópumeistara AC Milan. Meira
3. september 2013 | Íþróttir | 108 orð | 1 mynd

KNATTSPYRNA Úrvalsdeild kvenna, Pepsi-deildin: Varmárvöllur: Afturelding...

KNATTSPYRNA Úrvalsdeild kvenna, Pepsi-deildin: Varmárvöllur: Afturelding – ÍBV 18 1. deild kvenna, seinni úrslitaleikir: KR-völlur: KR – ÍA (0:3) 17.30 Fylkisvöllur: Fylkir – Grindavík (3:1) 17.30 3. deild karla: Búðagrund: Leiknir F. Meira
3. september 2013 | Íþróttir | 310 orð | 3 myndir

Lettneski knattspyrnumaðurinn Maksims Rafalskis mun ekki spila fleiri...

Lettneski knattspyrnumaðurinn Maksims Rafalskis mun ekki spila fleiri leiki með Skagamönnum í sumar en leikmaðurinn og ÍA hafa komist að samkomulagi um starfslok hans hjá félaginu. Meira
3. september 2013 | Íþróttir | 592 orð | 2 myndir

Mömmustrákur á 16 milljarða

Fréttaskýring Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Hundrað milljónir evra er hún, upphæðin sem gerir Walesverjann lítilláta Gareth Bale að dýrasta knattspyrnumanni sögunnar. Meira
3. september 2013 | Íþróttir | 127 orð | 1 mynd

Pepsi-deild kvenna Þróttur R. – Stjarnan 1:2 Margrét María...

Pepsi-deild kvenna Þróttur R. – Stjarnan 1:2 Margrét María Hólmarsdóttir 81. – Danka Podovac 15.,49. Breiðablik – FH 2:2 Sjálfsmark 1., Greta Mjöll Samúelsdóttir 5. – Sigrún Ella Einarsdóttir 27., Ashlee Hincks 37. Meira
3. september 2013 | Íþróttir | 426 orð | 2 myndir

Stjarnan felldi Þrótt

Pepsi-deild kvenna Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Íslandsmeistarar Stjörnunnar héldu sigurgöngu sinni áfram í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu í gærkvöld. Stjörnukonur buðu ekki upp á neina flugeldasýningu þegar þær sóttu Þrótt heim í Laugardalinn. Meira
3. september 2013 | Íþróttir | 262 orð

Teflum ekki í neina tvísýnu

Leikmenn íslenska landsliðsins í knattspyrnu voru að tínast til Bern í Sviss fram eftir kvöldi í gær en í dag hefst formlegur undirbúningur landsliðsins fyrir leikinn gegn Svisslendingum í undankeppni HM sem fram fer í Bern á föstudaginn. Meira
3. september 2013 | Íþróttir | 145 orð | 1 mynd

Topplið Liverpool styrkti hópinn

Liverpool, sem trónir á toppi ensku úrvalsdeildarinnar og hefur ekki byrjað betur í háa herrans tíð, bætti þremur leikmönnum við sig á lokadegi félagaskiptanna í gær. Meira
3. september 2013 | Íþróttir | 153 orð | 1 mynd

United tókst loks að landa Fellaini

Eftir japl, jaml og fuður tókst Englandsmeisturum Manchester United að landa belgíska landsliðsmanninum Marouane Fellaini en seint í gærkvöld var gengið frá félagaskiptum hans frá Everton til United. Meira
3. september 2013 | Íþróttir | 159 orð | 1 mynd

Viðar kominn með gott forskot

Selfyssingurinn Viðar Örn Kjartansson heldur áfram að gera það gott með Fylkismönnum. Meira
3. september 2013 | Íþróttir | 243 orð | 1 mynd

Þrjú met slegin með sölu á Özil

Salan á Gareth Bale sem fjallað er um hér að ofan var ekki eina metsalan á lokadegi félagaskiptagluggans í gær. Meira

Bílablað

3. september 2013 | Bílablað | 252 orð | 4 myndir

Aukið afl og útlitsbreytingar

Tvær nýjar gerðir af Mercedes-Benz bílum, E-Class og CLA, voru frumsýndar hjá Öskju hf. um helgina. Fjölmenni sótti sýninguna. Meira
3. september 2013 | Bílablað | 668 orð | 2 myndir

Dýrgripur með drjúga sögu

Fyrsti eigandi bílsins var sænski sendiherrann á Íslandi árið 1956,“ segir Magnús Pétursson, ríkissáttasemjari um forláta BMW sem hann hefur gert upp af natni undanfarin ár. Meira
3. september 2013 | Bílablað | 415 orð | 1 mynd

Ekki lengur leikfang auðkýfinga

Þrátt fyrir alla kostina – afköst, öryggi, þægindi og eldsneytissparnað – þá er Tesla Model S stimplaður af mörgum bílablaðamanninum sem leikfang eins prósentsins sem hefur efni á bíl af því tagi. Meira
3. september 2013 | Bílablað | 425 orð | 2 myndir

Framtíðin í framljósunum

Þetta er framljósakerfi frá CREE og það er það nýjasta í Led-perum fyrir bíla. Þróunin er hröð á þeim vettvangi um þessar mundir,“ segir Tinna María Magnúsdóttir, sölustjóri hjá Felgur.is. Meira
3. september 2013 | Bílablað | 307 orð | 2 myndir

Hleðslustöðvar fjölgi rafbílum

Forsvarsmenn BL, Nissan í Evrópu og Orkuveitu Reykjavíkur undirrituðu í sl. viku samning um uppsetningu tíu hraðhleðslustöðva fyrir rafbíla. Nissan og BL leggja stöðvarnar til og að auki ákveðna fjárhæð til uppsetningar þeirra. Meira
3. september 2013 | Bílablað | 1268 orð | 7 myndir

Kóngur einn dag

Maður prófar ekki aftursætið í þessum bíl, svo mikið er víst,“ hugsaði ég þegar nýr Porsche 911 Turbo S beið mín fyrir utan hótelið í Bad Driburg. Meira
3. september 2013 | Bílablað | 230 orð | 1 mynd

Stangast á við frelsi bílstjóra

Evrópusambandið (ESB) hefur nú til umfjöllunar tillögur til að bæta akstursöryggi á vegum og þar á meðal er tillaga um að settur verði búnaður í alla bíla er tekur völdin af ökumanni og tryggir að hann komi bílnum ekki nema að hámarki í 110 km/klst. Meira
3. september 2013 | Bílablað | 261 orð | 1 mynd

Stíga léttar í bensínfótinn

Frakkar stíga nú léttar í bensínfótinn en áður, en það má álykta af mikilli fækkun hraðasekta þar í landi á mesta ferðatíma ársins. Þannig mynduðu hraðamyndavélar 2.828.209 brot frá 1. júlí til 15. ágúst en á sama tímabili í fyrra voru þau 3.499.581. Meira
3. september 2013 | Bílablað | 474 orð | 3 myndir

Stúlka undir stýri

Það er ólíklegt að nafnið Shirley Muldowney hringi háværum bjöllum hjá öðrum en harðasta kjarna áhugamanna um kappakstursíþróttir. Meira
3. september 2013 | Bílablað | 355 orð | 1 mynd

Tíu nýir komnir á götuna

CLA og nýr E-Class Mercedes-Benz setja enn ný viðmið varðandi öryggi og sparneytni. Þetta segir Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju, um bílana nýju sem umboðið kynnti um helgina. Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.