Ljúffeng vegan thai-tómatsúpa

Súpan er einföld og bragðgóð.
Súpan er einföld og bragðgóð. Ljósmynd/Gulur, rauður, grænn og salt

Berglind Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur og matarbloggari á síðunni Gulur, rauður, grænn og salt, deildi uppskrift að þessari dásamlegu taílensku tómatsúpu á dögunum. Súpan er einföld í gerð, vegan og svakalega góð.

Uppskrift 

1 msk. ólífuolía
1 laukur
2 gulrætur, saxaðar
1 rauð paprika, söxuð
1 msk. thai red curry paste, t.d. frá Blue dragon
1 dós (400 g) saxaðir tómatar
1 dós (400 g) kókosmjólk, t.d. frá Blue dragon
1 stöng sítrónugras (eða hýði af ½ sítrónu,fínrifið)
1 msk. tómat-puree
1 msk. hrásykur
2 msk. basilíka
200 ml vatn

Basilíkan setur punkinn yfir i-ið.
Basilíkan setur punkinn yfir i-ið. Ljósmynd/Keyword

 

Aðferð 

  1. Hitið olíu á pönnu við meðalhita.
  2. Bætið lauk, gulrótum og papriku saman við og hrærið í 3 mínútur.
  3. Bætið engifer og curry paste og steikið í um 30 sekúndur.
  4. Bætið hinum hráefnunum saman við nema basilíkunni. Leyfið að malla með loki á í um 20 mínútur eða þar til grænmetið er orðið mjúkt. Fjarlægið sítrónugrasið (ef þið notuðuð það) bætið basilíkunni saman við og maukið í matvinnsluvél.
  5. Setjið súpuna aftur á hitann og bætið um 150 – 200 ml af vatni til að þynna súpuna. Hitið vel og leyfið að malla smá.  Berið fram með góðu brauði.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert