Við gefum bleikt kampavín og fögnum

Matarvefurinn er vinsælasti matarvefur landsins samkvæmt mælingum Gallup. Er ekki …
Matarvefurinn er vinsælasti matarvefur landsins samkvæmt mælingum Gallup. Er ekki tilvalið að skála fyrir því ?

Matarvefurinn þakkar frábærar viðtökur. Frá því að nýr vefur fór í loftið hefur lesturinn aukist jafnt og þétt en í síðustu viku heimsóttu rúmlega 50 þúsund notendur vefinn samkvæmt netmiðlamælingum Gallup.is. Er ekki tilvalið að skála fyrir því?

Til að þakka fyrir frábærar viðtökur gefum við Moët Rosé kampavín á morgun en valdir verða vinir af handahófi á facebooksíðu okkar. Smelltu hér til að líka við síðuna. 

Matarvefurinn leggur sig fram um að flytja skemmtilegar og girnilegar fréttir af nýjustu veitingahúsum landsins, nýjungum í matargerð, uppskriftir og margt fleira. Ekki hika við að senda okkur ábendingar eða spurningar á matur@mbl.is og við útvegum ráðleggingar frá mestu sérfræðingum landsins í matargerð.

Skál og takk fyrir okkur!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert