Vegan Mac & Cheese, stórkostlega djúsí og gott

Djúsí og girnilegt pasta með þykkri kasjú- og graskersósu.
Djúsí og girnilegt pasta með þykkri kasjú- og graskersósu. veganistur.is

Systurnar Helga María og Júlía Sif Ragnarsdætur, betur þekktar sem matarbloggararnir Veganistur, munu frumsemja fjórar girnilegar uppskriftir fyrir matarvefinn í janúar. Hugmyndin er að auka framboð á ferskum og frumlegum vegan-uppskriftum og halda veganúar hátíðlegan! Þú þarft ekki að vera vegan eða grænmetisæta til þess að elska uppskriftirnar frá þeim systrum. Þær eru dúndur góðar! 

„Mac & cheese er réttur sem fæstir Íslendingar alast upp við að borða enda eigum við ekki til flott íslenskt nafn yfir réttinn. Makkarónur með osti gæti gengið en það hljómar ekkert svakalega spennandi. Við systur höfum ekki oft smakkað mac & cheese og í þau fáu skipti höfum við ekki skilið hæpið, ekki fyrr en við smökkuðum vegan-útgáfu þar sem ostasósan var búin til úr graskeri og kasjúhnetum. Eins og það hljómar nú furðulega smakkast það virkilega vel. Við vissum strax að við yrðum að búa til uppskrift innblásna af þeirri hugmynd.“ 
Systurnar eru ekki bara snillingar í eldhúsinu heldur taka þær …
Systurnar eru ekki bara snillingar í eldhúsinu heldur taka þær gullfallegar myndir líka. veganistur.is

Rétturinn gæti ekki verið einfaldari, nema kannski ef sósan væri úr dufti og kæmi úr pakka, en þó munar ekki miklu. Þessi pínulitla auka-fyrirhöfn er algerlega þess virði því þetta er bæði virkilega bragðgott og svo er sósan næringarrík og inniheldur einungis holl og góð hráefni.
Hráefni
  • 450 g butternut-grasker
  • 350 g pasta
  • 150 kasjúhnetur 
  • 1/4 haus brokkólí
  • 1 tsk. gróft sinnep
  • 1/4 stór laukur 
  • 3 msk. næringarger
  • 1 dl jurtamjólk að eigin vali – við notuðum haframjólk frá Oatly
  • 2 tsk. pasta rossa krydd frá Santa maria (eða annað sambærilegt krydd)
  • 1 tsk. hvítlauksduft
  • 1 msk. sítrónusafi
  • salt og pipar eftir smekk
Aðferð
  • Leggið kasjúhneturnar í bleyti í að minnsta kosti klukkustund. Það er mjög fínt að setja þær í bleyti kvöldið áður og leyfa þeim að liggja yfir nótt svo þær séu orðnar vel mjúkar. Þetta fer allt eftir blandaranum sem þið eigið. Því betri sem hann er, því styttra þurfa þær að liggja í bleyti. 
  • Skerið graskerið niður í teninga og gufusjóðið í 15-20 mínútur
  • Mýkið laukinn á pönnu
  • Sjóðið pasta eftir leiðbeiningum á pakkanum
  • Steikið brokkólí á pönnu í nokkrar mínútur
  • Setjið öll hráefnin fyrir utan pastað og brokkólíið í blandara og blandið vel. Við bíðum oft með að setja salt og pipar þar til í lokinn þegar allt er komið saman og auðveldara að finna hversu mikið maður þarf.
  • Setjið pastað í stóra skál ásamt brokkólíinu, hellið sósunni út í og hrærið saman. 
  • Okkur þykir gott að bera þetta fram með ristuðu brauði
Mac & cheese er vanalega ekkert svakalega hollur réttur en í þessu tilfelli er hann það. Margir þola illa hvítt hveiti en það er hægt að nota hvaða pasta sem er með þessari sósu. Fyrir ykkur sem borðið ekki glútein er að sjálfsögðu ekkert mál að nota glúteinlaust pasta, við höfum margoft notað svoleiðis og það er nákvæmlega enginn munur á bragðinu. 

Vonum að þið njótið!
Veganistur
Hnausþykk og djúsí sósan er algjört æði.
Hnausþykk og djúsí sósan er algjört æði. veganistur.is
Mac & cheese er vanalega ekkert svakalega hollur réttur en …
Mac & cheese er vanalega ekkert svakalega hollur réttur en í þessu tilfelli er hann það þó að vissulega sé pasta aðeins hollt í hófi. veganistur.is
Systurnar eru samrýndar í eldamennsku sinni.
Systurnar eru samrýndar í eldamennsku sinni. veganistur.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert