Stórkostleg steikarsamloka með bernaise-sósu

Hnausþykk steikarsamloka sem bræðir hjarta þeirra sem elska bernaise sósu.
Hnausþykk steikarsamloka sem bræðir hjarta þeirra sem elska bernaise sósu. loly.is

Ólína S. Þor­valds­dótt­ir er alltaf kölluð Lólý af öll­um sem hún þekk­ir. Lólý er mik­ill snill­ing­ur í eld­hús­inu en hún held­ur úti mat­ar­blogg­inu Loly.is. Lolý er alveg með puttan á púlsinum í frostkastinu sem nú herjar á. Stundum dugar ekkert annað en virkilega djúsí matur til að fá hlýju í kroppinn og sálina.

„Stundum er svo gaman að borða svona djúsí samloku með uppáhalds hráefninu sínu – mér finnst nautakjöt ótrúlega gott og sérstaklega gott með bernaise sósu og ég veit að ég sko alls ekki ein um það eða að segja ykkur frá einhverju sem þið vitið ekki fyrir. En svo er svo geggjað að fá steikta sveppi og rauðlauk með eða bara það hráefni sem þið elskið mest. En ég nota hvert tækifæri til að geta borðað þetta geggjaða Brioche hamborgarabrauð sem til er í búðunum núna – bara svolítið gott að finna þetta extra smjörbragð af því. Og það var nú þess vegna sem ég gerði þessa geggjuðu samloku fyrir okkur um daginn.“

Á heimasíðu Lólýar er að finna góða uppskrift af bernaise-sósu.
Á heimasíðu Lólýar er að finna góða uppskrift af bernaise-sósu. loly.is

Brioche hamborgarabrauð
Nautakjöt(ég nota piparsteik)
100 g parmesan ostur
Bernaise sósa annað hvort heimagerð (sjá á síðunni minni) eða beint úr búðinni
Tómatar
Kál
Djion sinnep
Sveppir
Rauðlaukur
Balsamic glaze
salt og pipar
Garlic Thyme krydd frá Nicolas Vahé
smá smjör
Hvítlauksolía
Chilliolía

Magn af hráefni fer auðvitað eftir því hversu margir eru í mat.

Takið sveppina og skerið þá gróft. Steikið þá á pönnu með smjöri og kryddið með Garlic Thyme kryddinu frá Nicolas Vahé nú eða einhverju góðu hvítlaukskryddi.

Hitið grillið og grillið piparsteikina í nokkrar mínútur á hvorri hlið – bara spurning hversu mikið þið viljið hafa kjötið steikt. Ég kaupi oft piparsteikur sem eru tilbúnar 2 í pakka annað hvort í Bónus eða Krónunni og eru á mjög góðu verði.
Ég dreifi yfirleitt svolítið af chilliolíu yfir steikurnar áður en ég grilla þær og salta og pipra líka.

Skerið rauðlaukinn í sneiðar og setjið í eldfast mót, kryddið með salti og pipar og dreifið olíu yfir. Setjið laukinn inn í forhitaðan ofninn á 200°C og hafið laukinn inni þangað til hann er gullinn brúnn.

Setjið á ofnplötuna bökunarpappír og rífið parmesanostinn með rifjárni þangað til þið eruð komin með smá fjall á plötuna og dreifið þá úr honum þannig að hann myndi hring sem er frekar þunnur, gerið hringinn bara jafnstóran og brauðið er. Setjið ostinn inn í ofninn með rauðlauknum og hafið hann inni þangað til hann verður gullin brúnn.

Nú svo er bara að skera kjötið í þunnar sneiðar og raða svo öllu hráefninu á brauðið – ég set djon sinnepið á annan helminginn og bernaise sósu undir og ofan á.

Ég setti fyrst bernaise sósu,kál, tómatur,parmesanostur,kjöt,rauðlaukur, sveppir, fullt af sósu og svo djon sinnep smurt á lokið og voila – geggjuð steikarsamloka fædd.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert