Þessar eiga eftir að gera allt vitlaust

Hinn fullkomni morgunverður.
Hinn fullkomni morgunverður. barelytherebeauty.com

Fyrir þá sem elska að baka pönnukökur á helgarmorgnum er þessi uppskrift hreinræktuð himnasæla. Hér er búið að taka hefðbundna ameríska pönnukökuuppskrift og bæta við kanilfyllingu sem fær hjartað til að slá hraðar.

Kanilfyllingin verður til.
Kanilfyllingin verður til. barelytherebeauty.com

Uppskrift

Kanilfylling:

  • 2 msk. smjör
  • 1 msk. púðursykur
  • 1 tsk. kanill

Rjómaostkrem:

  • 2 msk. smjör
  • 3 msk. rjómaostur
  • 6 msk. flórsykur
  • nokkrir vanilludropar

Pönnukökudeig:

  • 130 gr hveiti
  • 1 tsk. lyftiduft
  • salt á hnífsoddi
  • 1 egg
  • 1 tsk. olía
  • 120 ml mjólk

Aðferð:

  1. Byrjið á kanilfyllingunni. Blandið saman smjöri, púðursykri og kanil í frystipoka eða skál. Leggið til hliðar.
  2. Rjómaostkremið er gert með því að bræða smjörið í potti og bæta við rjómaostinum. Hrærið kröftuglega í og þá munu hráefnin blandast örugglega. Bætið við flórsykri, einni skeið í einu, og blandið að lokum vanilludropum saman við. Leggið til hliðar.
  3. Pönnukökudeigið gerið þið með því að sigta þurrefnin saman í skál. Bætið við mjólk, eggi og olíu og hrærið saman. Þegar blandan er orðin þykk og fín skulið þið setja hana í passlegum skömmtum á pönnuna. Best er að nota pönnu sem ekki þarf að smyrja. Hver pönnukaka ætti að vera 10-15 sm í þvermál. Látið steikjast á miðlungshita í nokkrar mínútur þar til litlar loftbólur eru farnar að myndast á hliðunum.
  4. Þá tekurðu kanilfyllinguna og hér kemur frystipokinn að góðum notum. Best er að klippa lítið horn á hann til að geta sprautað fyllingunni í fallega hringi eins og sést á myndinni. Því næst snúið þið pönnukökunni við og steikið í rólegheitunum í þrjár mínútur eða svo.
  5. Steikið allar pönnukökurnar með þessum hætti uns deigið er uppurið.
  6. Síðan skaltu hita upp rjómaostfyllinguna og sprauta henni yfir pönnukökurnar. Þetta er í alvörunni svo gott að við spáum þessari uppskrift gríðarlegum vinsældum.
Hér sést hvernig kanilfyllingin er sett á meðan á steikingu …
Hér sést hvernig kanilfyllingin er sett á meðan á steikingu stendur. barelytherebeauty.com
Girnilegar eru þær.
Girnilegar eru þær. barelytherebeauty.com



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert