Konur eiga...

Margir hafa haft álit á því hvernig konur skuli haga …
Margir hafa haft álit á því hvernig konur skuli haga sér í gegnum tíðina- og hafa enn. mbl.is/thinkstock

Konum hefur verið ráðlagt fram og til baka gegnum tíðina hvernig þær „þurfa“, „eiga“ og „ættu“ að vera að ógleymdu alhæfingum um hvernig þær séu. Þetta tilheyrir ekki fortíðinni þótt orðræðan hafi breyst. Þær hafa átt að vera blíðmálar, vera kvenlegar eða meira eins og karlmenn og hafa pung. Vera upp á punt eða ekki vera upp á punt. Sunnudagsblað Morgunblaðsins skautaði í gegnum nokkur tilmæli til kvenna síðustu áratugi, frá körlum til kvenna og frá konum til annarra kvenna.

Matarvefurinn á til með að birta þessa áhugaverðu samantekt enda verður þessi tilsögn að teljast til mikilvægra húsráða - sem vonandi sem flestar konur hunsa!

...ekki að vera hégómlegar

„Mér þykja konurnar yfirleitt dásamlegar útlits. En þær hræða okkur karlmennina með klæðnaði sínum. Við kærum okkur ekkert um að þær veki athygli. Við höfum auðvitað ekkert á móti því, að dáðst sé að konunum, sem við erum með, en það er oft svo mjótt á milli þess og að brosað sé að þeim — klæðnaðarins vegna. Við kunnum ekki við neitt, sem er hégómlegt. Þess vegna er okkur illa við palliet-kjóla og jakka, sömuleiðis leiðast okkur þessir bláu litir, sem svo mikið eru í tízku. Konum þykja þeir fallegir, þó að ég efist um að svo sé.“

(Vikan, grein um tísku út frá sjónarmiði karlmanna, 1939)

...ekki að heilsa setuliðinu

„Hér á Íslandi er það ekki óalgengt, að heyra breska hermenn ávarpa óþekktar konur á götum úti, og sjá þá sýna töluverða frekju í því að komast í fylgd með þeim. Þetta háttalag breskra hermanna sýnir betur en nokkuð annað þá lítilsvirðingu, er þeir bera fyrir íslensku þjóðinni. Og íslenskar konur ættu að vera þess minnugar, verði þær fyrir slíkum „heiðri“, sem að framan greinir, að þá eru þær um leið, af viðkomandi hermanni, settar á bekk með enskum götuskækjum.“

(Verkamaðurinn, 1941)

...ekki að nöldra

„Engin kona ætti að þurfa að vera nöldurskjóða, af því að það er áunninn eiginleiki – eða ættum við ekki heldur að segja, óvani? Nöldrunarsöm eiginkona er ógæfukona. Hún gerir bæði sér og manni sínum lífið leiðinlegt. – Sjálfri sér gerir hún meira tjón en hana grunar. Fegrunarsérfræðingum kemur saman um, að fátt fari jafn illa með konuna og óánægja og þegar af henni leiðir nöldur og nag. Fátt er jafn eyðileggjandi fyrir fegurð hennar og yndisþokka. Þótt eiginmaðurinn sé strangur og stirðlyndur, er nöldur þitt gagnslítið, skammir og grátköst ennþá gagnsminna.

Sá gamli er vís með að þrífa hatt sinn, henda hurðinni að stöfum og leita sér síðan félagsskapar á öðrum slóðum.“ (Lögberg, 1947)

...æfa íþróttir í hófi

„Konur geta og eiga að iðka margar íþróttir sér til heilsubótar og skemmtunar, en þær verða að gera það í hófi til þess að íþróttirnar hafi ekki þveröfug áhrif við það sem ætlazt er til, nefnilega: geri þær ljótar í vexti í stað þess að fegra vöxtinn. [...] Látum okkur því nægja, stelpur mínar, að iðka okkar sport í hófi, til þess að viðhalda sæmilegu vaxtarlagi, en látum karlmennina um sínar íþróttir og verum ekkert að sperra okkur móti þeim. Það klæðir okkur hvort sem er ekki að vera eins og karlmenn — hvorki andlega né líkamlega.“

(Mánudagsblaðið, 1949)

...að passa að aðrir verði ekki fullir

„Ölvun við akstur kostar stöðugt fleiri og fleiri mannslíf. Konur ættu í þessu sambandi að íhuga ábyrgð þá, sem þeim er á herðar lögð. Hvetjið aldrei ökumann til áfengisnautnar. Munið að aðeins óverulegt magn getur haft örlagarík áhrif á ökuhæfni. Sýnið vilja yðar í verki með því að bragða ekki vín sjálfar þegar svo stendur á. Það er skylda góðrar húsfreyju að sjá svo um við hátíðleg tækifæri að óáfengir drykkir séu einnig á boðstólum.“ (Úr ræðu á Bindindis- og í menningarmálaþingi norrænna kvenna, 1950)

...ekki að spyrja spurninga

„Það eru til spurningar sem konur ættu aldrei að spyrja mennina sína: 1) Hvar hefurðu verið? 2) Hvers vegna kemurðu svona seint? 3) Ertu í vondu skapi? 4) Hvers vegna segirðu aldrei neitt sætt við mig? Í staðinn eiga þær að segja: 1) Mikið hef ég saknað þín.

2) Yndislegt að þú skulir vera kominn heim. 3) Mikið ertu þreytulegur, vinur minn.

4) Mikið ertu karlmannlegur í þessum frakka.“ (Vikan, 1958)

...að hafa þrýstinn barm

„Um það eru allir sammála, bæði konur og karlar. Það hefur orðið margri konu mikil raun ef hún var flatbrjósta. Kona þarf að hafa þrýstinn barm. Til eru þær konur sem hafa svo mikil brjóst að þær kjósa að láta minnka þau með skurðaðgerð, og það er stundum gert, en hinar eru þó fleiri sem vilja fá stærri brjóst en þær hafa og það er líka hægt. Inn í brjóstin er dælt einhverri plastkvoðu sem þenur þau út.

(Fálkinn, 1965)

...taka þátt í fimleikum og fögrum limaburði

„Annars nennti ég ekki að fylgjast með þessum kvennaköstum. Konur eiga að taka þátt í fimleikum og fögrum limaburði og einhverju fíngerðu bróderí en – æ jæja ég veit margar – kannski flestar – konur eru annarrar skoðunar, kvenréttindakonur, rauðsokkur, úur og hvað þær nú heita og nenni ekki að þrasa um þetta.

(Úr skrifum um Ólympíuleikana í München 1972 í Morgunblaðinu)

...ekki að læra lögfræði

„Konur eiga ekki að standa í stjórnmálabaráttu, því stjórnmálabarátta er af hinu illa. Allir kannast við illt umtal, óvild og jafnvel hatur, sem þeir verða fyrir, er sitja á Alþingi eða bjóða sig fram til þings. Svört hugsanagervi sækja að þeim úr öllum áttum. Það er best, að hið grófara kyn, karlmennirnir taki á móti slíkum sendingum. [...] Þær eiga ekki að flytja mál fyrir dómi og þess vegna þurfa þær ekki að læra lögfræði. Það er ekki við þeirra hæfi að segja hálfan sannleik og flækja mál.“

(Aðsend grein, Dagur, 1974)

...ekki að þiggja þingsæti vegna pjatts

„Konur eiga að sækja ótrauðar á brattann og mega ekki skjóta sér undan ábyrgð. Þær eiga ekki að þiggja þingsæti af körlum upp á punt og pjatt. Þær eiga að vinna til þeirra og taka þau fyrir eigin atbeina.“ (Leiðaraskrif, Vísir, 1975)

...taka ábyrgð á launamismun

„Körlum hér á landi hefur fyrir löngu lærst að meta kosti kvenna og draga verður í efa, að nokkur trúi því að konur séu andlegir eftirbátar þeirra. Hinu er ekki að leyna, að konur hafa sjálfar einatt verið haldnar nokkurri vanmáttarkennd gagnvart sambýlingum sínum. Þetta hefur orðið til þess að starfskraftar þeirra hafa verið misnotaðir í ýmsum greinum. Alkunnugt dæmi er það, að karlar, sem vinna í karlmannafataverslunum hafa haft mun hærra kaup en þær konur, sem vinna undir stjórn kvenna í kvenfataverslunum. Hér er við konur einar að sakast.“ (Úr sömu leiðaraskrifum í Vísi, 1975)

...eiga hraust börn og mann til að árangri í viðskiptalífinu

„Verður að eiga mann og börn sem komin eru af dagheimilisaldri og búin að fá sem flesta barnasjúkdóma. Ógiftar konur sem eru barnlausar eru líklegar til að ætla sér lengra en nokkur kærir sig um.“ (Úr grein um hvernig er best að sækja á innan viðskiptalífsins birtist í Helgarpóstinum 1985. Upplýsingarnar voru fengnar frá nafnlausum álitsgjöfum, sem voru sagðir fylgjast vel með íslensku atvinnulífi og hefðu sérhæft sig í því að velja hentuga starfsmenn fyrir þá sem þurfa.)

...ekki að reyna að vera fyndnar

„Konur sem ætla sér að ná langt á vinnumarkaðnum ættu ekki að flíka skoðunum sem hugsanlega er hægt að tengja kvennabaráttu. Starfsferillinn verður að hafa stígandi, þótt hún megi vera hægari en hjá karlmönnum þar sem konur verða oft að sjá á eftir karlpeningnum á uppleiðinni. [...] Konur eiga að tala skýrt og hafa góða símarödd. Konur eiga ekki að reyna að vera fyndnar eða segja brandara, en þeim á að líka kímnigáfa karlanna. Hláturinn á að vera mildur en má vera dillandi. Konur verða að gæta þess sérstaklega vel að vera með á nótunum og helst vita meira en viðmælandinn því um leið og konan strandar á einhverju vaknar upp grunur um að hún eigi betur heima innan um börn og buru en í hörðum heimi karlanna. (Úr sömu grein í Helgarpóstinum, 1985)

...sinna skyldum sínum

„Það þarf að breyta viðhorfi kvenna til kvenna. Það þarf að gera konum kleift að vera heima. Konur verða að gera upp við sig að á þeim hvílir skylda samfara því að eiga börn. Skyldur fylgja öllum verkefnum. Ef þú ert úti á vinnumarkaði getur þú sagt upp. Móðurhlutverkinu getur þú ekki sagt upp.“

(Lesendabréf, Morgunblaðið, 1994)

...erfitt með að þola álag

„Einn helsti munurinn á körlum og konum er viðbrögð þeirra við álagi. Karlar verða einbeittir og einangra sig en það þyrmir yfir konurnar og þær verða mög tilfinningasamar.

(Úr bókinni Karlar eru frá Mars, konur eru frá Venus, 1995)

...ekki að vera í skærum litum á Alþingi

„Á Alþingi ættu konur ekki að ganga í peysum eða skærlitum jökkum. Alþingi býður upp á virðulegan stíl og Anna segir að tilvalið sé að ganga í dökkbláum, gráum eða dökkleitum fötum. „Það hentar ekki að vera í skærlitum jökkum vegna þess að þá sker konan sig úr.““ (Viðtal við útlitsráðgjafa í Frjálsri verslun, 1995)

...að læra að kasta og grípa

„Það þarf að kenna konunum rétt kastlag. Allir sem hafa séð stelpur reyna að kasta snjóbolta vita að þær vantar sveifluna sem til þarf. En þetta er hægt að kenna og ætti að gera strax í íþróttakennslu í barnaskólum.“ (Handboltaþjálfari í viðtali, DV, 2001)

...ekki að vera hræddar við ábyrgð

„Það er erfitt að fá konur í stjórnunarstöður, þeim þykir óþægilegt að taka ábyrgð.“ (Úr pallborðsumræðum á námsstefnu Samtaka atvinnulífsins, Félags kvenna í atvinnurekstri og iðnaðar- og viðskiptaráðuneytisins, 2007)

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert