Naglalakk með Prosecco-bragði

Naglalakkið er vissulega smart en afhverju ætti maður að vilja …
Naglalakkið er vissulega smart en afhverju ætti maður að vilja fara aftur í það að sjúga á sér fingurnar líkt og í barnæsku? mbl.is/ groupon.com

Það sannast enn á ný að allt er nú til. Ameríska afsláttarsíðan Groupon hefur hafið framleiðslu á naglalakki með Prosecco-bragði en Prosecco er ákaflega vinsæl tegund af ítölsku freyðivíni. 

Hugmyndin er  að við leiðinlegar aðstæður svo sem þrúgandi fundi megi stinga upp í sig fingrinum og fá bragð af freyðivíni til að auðvelda sér lífið um stutta stund. Naglalakkið inniheldur í raun alvöru Prosecco og ku vera ansi bragðgott. Það ilmar einnig af Prosecco. Hvort það er góð hugmynd að byrja að sjúga fingurna við hinar og þessar aðstæður er þó annað mál. Hér er hægt að panta naglalakkið.

Naglalakkið ilmar af Prosecco.
Naglalakkið ilmar af Prosecco. mbl.is/Groupon.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert