Eggjakaka kraftlyftingakonunnar

Eggjakökur má einnig nota sem samlokur og fylla þær af …
Eggjakökur má einnig nota sem samlokur og fylla þær af gúmmelaði. mbl.is/pintrest.com

Kostir haframjöls sem hráefnis eru ótal margir. Fyrir utan að vera bráðhollt, uppspretta flókinna kolvetna og trefja, vítamína og steinefna, er það ódýrt og það er hægt að bæta haframjöli í nær flesta matreiðslu og drýgja hana, allt frá kjötbollum upp í drykki. Flestum veitir ekki af til að bæta meltinguna, enda vantar okkur yfirleitt meiri trefjar í mataræðið. Til dæmis má vel setja haframjöl í eggjakökuna til að auka næringar- og trefjagildi hennar en egg innihalda mikið af próteinum og með höfrunum er því komin fullkomin samsetning til að borða til dæmis eftir góða kraftlyftingaæfingu.

Það má vel borða eggjakökuna kalda og taka afganginn sem …
Það má vel borða eggjakökuna kalda og taka afganginn sem nesti. mbl.is/blog.seasonwithspice.com

1 bolli haframjöl
2 egg
1 laukur, fínt skorinn
1 tómatur, fínt skorinn
½ lítil paprika, fínt skorin
handfylli spínat
1 grænt chilialdin, fínt skorið
¼ tsk. chiliduft
3-4 msk. mjólk
3 tsk. olía
salt eftir smekk

Mýkið spínat á pönnu í 1 msk. af olíu í fáeinar mínútur við lágan hita. Sláið eggin saman, hellið haframjölinu og öðru hráefni út í ásamt spínatinu og blandið saman. Setjið 2 tsk. af olíu á pönnuna, hellið eggjablöndunni út á og hafið hitann rétt yfir meðallagi. Hrærið í miðjunni með sleikju fyrstu mínúturnar og hristið pönnuna öðru hvoru, þannig er auðveldara að snúa henni við. Snúið ommelettunni við og eldið á hinni hliðinni þar til eggin eru fullelduð. Gott er að leggja salat ofan á ommelettuna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert