Kryddaðir morgunþeytingar

Ólöf hvetur fólk til að leika sér með krydd í …
Ólöf hvetur fólk til að leika sér með krydd í morgunþeytingana. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ólöf Ein­ars­dótt­ir í Krydd- og tehúsinu notar krydd á nýstárlegan hátt. Hún dembir þeim í alla matargerð og morgunmaturinn er þar engin undantekning. Kryddin hafa öll sína styrkjandi heilsueiginleika en hún raðar þeim saman með bragð og heilsubætandi áhrif í huga. Þessar uppskriftir heldur hún mikið upp á.

Smoothie með allrahanda, kanil og kardemommum:

½ frosinn banani
1 glas möndlumjólk
Allrahanda á hnífsoddi
Kanill á hnífsoddi
1 kardemomma (mulin í hýðinu)
1 msk. chia-fræ (lögð í bleyti yfir nótt)
1 msk. sesamfræ (lögð í bleyti yfir nótt)

Allt sett í blender og maukað saman.

  

Smoothie með engifer, sumac og túrmerik

Lúka af spínati
1 glas kókosvatn
Engifer (malaður) á hnífsoddi
Túrmerik á hnífsoddi
Sumac á hnífsoddi 

Allt sett í blender og maukað saman.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert