Svona eldar þú djúsí kalkúnabringu

Ég ber bringuna gjarnan fram með hunangsgulrótum, spínati og appelsínusneiðum …
Ég ber bringuna gjarnan fram með hunangsgulrótum, spínati og appelsínusneiðum á stórum bakka. mbl.is/ Tobba Marinós

Ég elda gjarnan kalkúnabringu á hátíðisdögum. Við steikingu á kalkúnabringum er miðað við 30-40 mínútur á hvert kg í 170°C heitum ofni. Ég er þó hrifnari af því að elda hana á minni hita í lengri tíma til að forðast að hún ofþorni. Galdurinn að mínu mati felst þó í að setja sítrusávexti, appelsínu og nokkrar sítrónusneiðar, í mótið til að fá ferskt bragð og aukinn raka. Með bringunni ber ég fram maísfrauið hennar ömmu, hvítvínssveppasósu, hunangsgulrætur, rótargrænmeti og sætkartöflumús.

Ég set gjarnan gulrætur eða lauk með í mótið ef …
Ég set gjarnan gulrætur eða lauk með í mótið ef ég er í stuði. mbl.is/Tobba Marinós

1 kg kalkúnabringa 
1/2 appelsína 
1/2 sítróna 
Smjör 
Herb de provance kryddblanda 
Kalkúnakrydd 
Kalkúnakraftur 

Setjið bringuna í eldfastmót. 
Nuddið bringuna upp úr kryddi og smjöri.
Raðið appelsínu og sítrónusneiðum yfir bringuna. 
Setjið væna smjörklípu yfir bringuna.
Setjið 2 msk. af kalkúnakraft í 200 ml af soðnu vatni og setjið með ofan í mótið.

Setjið lokið á og inn í ofn á 100 gráðu hita í 1,5 klst. 
Ausið regulega smjöri yfir bringuna og takið lokið af síðustu 15 mínúturnar. Gott er að stinga kjötmæli í bringuna eftir 1,5 klst. Mælirinn á að sýna 73–74°C. Þá er bringan tilbúin, ef ekki þá þarf hún að vera lengur í ofninum. Gott er að leyfa bringunni að hangsa (hvíla) á borði í um 15 mín. til að hún haldi betur safanum.

Ath! ef bringan verður þurr má redda því með að bræða smjör og setja smá kalkúnakrydd og kannski 1 msk. af appelsínusafa í pott og dreypa yfir kjötið áður en það er borið fram.

Hér notaði ég ferskt timijan líka.
Hér notaði ég ferskt timijan líka. mbl.is/TM
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert