Reiðar konur redda örbylgjuofninum

Reiða mamman kemur í tveimur litum.
Reiða mamman kemur í tveimur litum. Ljósmynd/Home-X

Það verður seint sagt að jafnrétti ríði feitum hestum frá vöruúrvali fyrirtækisins Home-X sem meðal annars selur vörur sínar á Amazon. Margt sniðugt er í boði eins og maíspússari, laukdolla, risabréfaklemma og naglahaldari en við rákum augun í eina mest seldu græjuna þeirra en það er örbylgjuofnahreinsir sem sagður er líkja eftir reiðri mömmu.

Svo mjög á mamman að reiðast að strókurinn stendur úr kollinum á henni og hreinsar í leiðinni örbylgjuofninn. Það eina sem þarf að gera til að reita mömmuna til reiði er að fylla hana af vatni og ediki og stilla á sjö mínútur. Eftir að gufan hefur hreinsað örbylgjuofninn er auðvelt að strjúka hann að innan með þurrum hreinum klút. Hér er hægt að panta mömmuna reiðu.

Ljósmynd/Home-X
Þetta undratæki hreinsar maísstöngulinn á snjallan hátt.
Þetta undratæki hreinsar maísstöngulinn á snjallan hátt. Ljósmynd/Home-X
Gott er að geyma grænmetið í svona plastboxi.
Gott er að geyma grænmetið í svona plastboxi. Ljósmynd/Home-X
Bráðsnjöll lausn til að geyma miða og annað nauðsynlegt.
Bráðsnjöll lausn til að geyma miða og annað nauðsynlegt. Ljósmynd/Home-X
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert