Opna íslenskan fiskistað í New York

Erna mætt á vaktina í Bandaríkjunum.
Erna mætt á vaktina í Bandaríkjunum. skjáskot/Facebook

Icelandic Fish and Chips er vinsæll fiskistaður við Tryggvagötu sem selur „fish and chips“ eða fisk og franskar sem minna á hin vinsæla breska rétt. Veitingakonan Erna Kaaber rekur veitingastaðinn ásamt mági sínum, Ólafi F. Sigurðssyni.

25. júní næstkomandi opnar staðurinn sitt annað útibú og það í New York við sjöunda stræti í Manhattan. Vefsíðan foodandwine.com fagnar þessum fréttum og segir fiskinn frá veitingahúsinu vera stórgóðan og ógni í raun hinum hefðbundnu bresku veitingastöðum allsvakalega.

Í greininni er gerð úttekt á muninum á íslenskum djúpsteiktum fiski og frönskum og þeim upprunalega frá Bretlandi. Helst má nefna að íslenska útgáfan innheldur íslenskan fisk og deigið inniheldur spelt sem verður fyrir vikið léttara. Einnig er deigið laust við áfengi en Bretar setja gjarnan bjór í deigið. Í greininni er þó tekið fram að gott sé að drekka bjór með herlegheitunum. Íslensku kartöflurnar eru svo lífrænar og ofnbakaðar en ekki djúpsteiktar líkt og í Bretlandi. Því er um að ræða hollari útgáfu af réttinum vinsæla. Síðast en ekki síst býður Icelandi Fish and Chips upp á skyronnese sem er sósa gerð úr skyri, olíu og kryddum en sósan er ákaflega vinsæl. Spennandi verður að sjá hvernig New York tekur á móti fyrsta íslenska fiskistaðnum.

Hér má lesa greinina í heild sinni.

Fyrir áhugasama má finna veitingahúsið við þetta heimilisfang:
2
8 7th Ave South
NEW YORK, NY 10014

Djúpsteiktur fiskur með laukhringjum, kartöflum og silkimjúkum skyronnaise-sósum að hætti …
Djúpsteiktur fiskur með laukhringjum, kartöflum og silkimjúkum skyronnaise-sósum að hætti staðarins. mbl.is/Styrmir Kári
„Þegar fish & chips-hugmyndin kom upp sökkti ég mér í …
„Þegar fish & chips-hugmyndin kom upp sökkti ég mér í athugun á olíum og sá fljótlega að djúpsteiktur matur er alls ekki óhollur ef rétt er að öllu staðið,“ segir Erna Kaaber. Styrmir Kári/mbl.is
Hér má sjá innréttingarnar á Íslandi en spennandi verður að …
Hér má sjá innréttingarnar á Íslandi en spennandi verður að sjá hönnun nýja staðarins í New York. mbl.is/Styrmir Kári
Icelandic Fish and Chips í miðbæ Reykjavíkur.
Icelandic Fish and Chips í miðbæ Reykjavíkur. mbl.is/Styrmir Kári
Flestir erlendra gesta staðarins hérlendis eru Bretar að sögn Ernu.
Flestir erlendra gesta staðarins hérlendis eru Bretar að sögn Ernu. Styrmir Kári
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert