Súkkuklaðikaka með sykurpúðakremi og hindberjasírópi

Ljósmynd/Lilja Katrín – blaka.is
Súkkulaðikökur eru eins misjafnar og þær eru margar og sumar eru hreinlega betri en aðrar. Lilja Katrín á blaka.is deildi þessari uppskrift sem hún segir að sé algjört „möst“ að prufa. Það taka eflaust margir undir orð hennar enda hljómar nafnið á kökunni eins og sælgæti: sykurpúðakrem og hindberjasíróp. Við erum alla vega yfir okkur spenntar á matarvefnum og ætlum að prófa þessa dásemd við fyrsta tækifæri.

Sjálf segir Lilja Katrín:

„Þessi súkkulaðikaka er algjört dúndur, þótt ég segi sjálf frá. Ég nota olíu í stað smjörs í botnana, sem þýðir að kakan verður alveg extra mjúk og djúsí. Svo ákvað ég að búa til hindberjasíróp til að pensla botnana með og kom það svakalega vel út. Það kemur léttur berjakeimur sem er alls ekki of sterkur og eykur bara á mýkt kökunnar. Rúsínan í pylsuendanum er síðan sykurpúðakremið en í það notaði ég Marshmallow Fluff, sem ég kaupi yfirleitt í Hagkaup eða Nettó.“
Súkkuklaðikaka með sykurpúðakremi og hindberjasírópi
Súkkulaðikaka
  • bollar hveiti
  • bolli kakó
  • tsk. lyftiduft
  • 1 1/2 tsk. matarsódi
  • 1 1/2 bolli sykur
  • 1/2 bolli púðursykur
  • bolli grísk jógúrt
  • 3/4 bolli olía
  • 2tsk. vanilludropar
  • 3 egg
  • bolli sjóðandi heitt vatn
Hindberjasíróp
  • 1/4 bolli sykur
  • 1/4 bolli vatn
  • bollar hindber (frosin eða fersk)
Sykurpúðakrem
  • 150 g mjúkt smjör
  • 300 g flórsykur
  • 200 g Marshmallow Fluff
  • tsk. vanilludropar
Aðferð:

Súkkulaðikaka
  1. Hitið ofninn í 180°C og takið til tvö hringlaga form, sirka 18 sentímetra stór. Setjið smjörpappír í botninn og smyrjið hliðarnar með smjöri.
  2. Blandið þurrefnunum saman í skál og setjið til hliðar.
  3. Blandið grískri jógúrt, olíu, vanilludropum og eggjum saman í annarri skál.
  4. Blandið jógúrtblöndunni saman við þurrefnin þar til blandan er kekkjalaus. Ég nota bara písk eða sleif við þetta en það er auðvitað hægt að nota þeytara.
  5. Blandið vatninu varlega saman við þar til allt er vel blandað saman en deigið á að vera í þynnra lagi.
  6. Deilið deiginu á milli formanna og bakið í um það bil hálftíma. Leyfið kökunum að kólna í að minnsta kosti 10 mínútur áður en þið fjarlægið hringinn af forminu.
Hindberjasíróp
  1. Búið til sírópið á meðan kakan er að kólna. Setjið sykur og vatn í pott og leyfið suðu að koma upp við meðalhita.
  2. Setjið hindberjin í pottinn og leyfið þessu að malla í 5-7 mínútur og hrærið í blöndunni við og við.
  3. Takið pottinn af hellunni og hellið blöndunni í gegnum sigti til að skilja öll fræin frá. Leyfið blöndunni að kólna í ísskápnum.
Sykurpúðarkrem
  1. Þeytið smjörið í 4-5 mínútur og blandið síðan flórsykri saman við.
  2. Blandið Marshmallow Fluff saman við, einni matskeið í einu, þar til allt er vel blandað saman.
  3. Loks hrærið þið vanilludropum saman við.
  4. Setjið annan kökubotninn á disk (eða skerið hvorn botninn í tvennt) og penslið hann með hindberjasírópinu. Leyfið kökunni að draga í sig sírópið og penslið síðan aftur.
  5. Skellið gommu af kremi á botninn og dreifið úr.
  6. Snúið hinum kökubotninum á hvolf og penslið hann með sírópinu, líkt og hinn botninn.
  7. Snúið botninum við og skellið ofan á kremið. Skreytið síðan kökuna með afgangskreminu.
Ljósmynd/Lilja Katrín – blaka.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert