Mikið af sérpöntunum fyrir brúðkaup

Standar sem þessir rúma 180 kleinuhringi.
Standar sem þessir rúma 180 kleinuhringi. Ljósmynd/Krispy Kreme

„Ást Íslendinga á kleinuhringjum virðist engan bilbug láta á sér finna. Að sögn Viðars Brink, rekstrarstjóra Krispy Kreme, færist það í vöxt að fólk láti sérhanna kleinuhringi fyrir brúðkaup, fermingar og aðrar veislur. Svokallaðir standar séu mjög vinsælir og þeim berist mikið af fyrirspurnum frá fólki sem vill bjóða upp á eitthvað öðruvísi og persónulegt. 

„Við fáum margar fyrirspurnir daglega frá einstaklingum sem eru að fara að halda afmæli, brúðkaup, fermingar eða bara starfsmannafögnuð. Við höfum verið með margar brúðkaupsveislur og finnst okkur alltaf best að fá brúðhjónin í heimsókn til okkar og ræða hugmyndir. Það getur verið að þau séu með eitthvert litaþema eða vilja að við gerum eitthvað sérstakt fyrir þau og þá reynum við alltaf að koma til móts við þau. Við gerum t.d. oft hjartalaga skeljar sem við fyllum svo með súkkulaði og toppum með hvítu eða bleiku kremi. Það er mjög vinsælt í brúðkaup,“ segir Viðar.

Viðar lærði sjálfur í Bretlandi þar sem hann segir algengt að fyrirtæki panti sérhannaða kleinuhringi. Gott dæmi um þetta séu svokallaðir kampavíns-kleinuhringir sem verslunarkeðjan Selfridges lét Krispy Kreme útbúa í samstarfi við Hershey-súkkulaði. 

Viðar segir að þetta sé að færast í aukana hér þó að enn sé þetta ekki í líkingu við það sem gerist í Bretlandi. 

Hershey's heaven 😍

A post shared by Krispy Kreme UK (@krispykremeuk) on May 30, 2017 at 2:31am PDT

Standar sem þessir njóta mikilla vinsælda á veisluborðum landsmanna.
Standar sem þessir njóta mikilla vinsælda á veisluborðum landsmanna. Ljósmynd/Krispy Kreme
„Hægt er að stilla standana þannig að þeir virka líka …
„Hægt er að stilla standana þannig að þeir virka líka vel í barnaafmæli eða minni veislur. Við fáum margar fyrirspurnir daglega frá einstaklingum sem eru að fara að halda afmæli, brúðkaup, fermingar eða bara starfsmannafögnuð,“ segir Viðar Brink, rekstrarstjóri Krispy Kreme. Ljósmynd/Krispy Kreme
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert