Gerðu brúðartertu úr venjulegri Costco-köku

Ljósmynd: Instagram

Hægt er að spara verulegar fjárhæðir með hugvitssemi og ef maður hefur góða hugmynd til að styðjast við. Hér gefur að líta venjulega brúðarköku eins og hún myndi kallast sem búið er að skreyta listilega vel. 

Costco selur sambærilegar kökur og eins og sjá má á þessum myndum þarf bara að skreyta kökurnar með tilþrifum til þess að þær líti út eins og bakarameistari eða rándýr kökuhönnuður eigi heiðurinn af verkinu. 

Eins og sjá má þarf töluvert af blómum og berjum til að meistaraverkið heppnist en svo má auðvitað fara út í garð eins og gert var hér:

Sjá frétt mbl.is: Hamfarakaka sem setti Vesturbæinn á hliðina.

Kökurnar eru á góðu verði þannig að miðað við að einhverju sé eytt í skreytingar má vel fá boðlega brúðartertu fyrir 5.000 krónur sem hlýtur að teljast harla vel sloppið.

Ljósmynd: Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert