Hinn fullkomni sumarbústaðaeftirréttur

Ljósmynd: Ljúfmeti og lekkerheit.

Svava á Ljúfmeti og lekkerheit birti á dögunum þessa snilldar skyrkökuuppskrift sem hún segir að sé spariútgáfa af spariskyri. Sniðugt er að bera spariskyrið fram í sumarbústaðnum enda er það sérlega auðvelt að búa til, létt í maga og syndsamlega bragðgott. 

Aðferðin er einföld en hún er svohljóðandi: 

„Þegar strákarnir voru litlir bjó ég stundum til eftirrétt handa þeim sem við kölluðum spariskyr. Þetta var í algjöru uppáhaldi hjá þeim og enn þá vekur þetta lukku. Hefðbundið spariskyr er í raun bara jarðarberjaskyr hrært með þeyttum rjóma og þegar spariskyrið er komið í skál set ég smá hakkað suðusúkkulaði yfir.“

  • Rjómi er þeyttur og hrærður saman við vanilluskyr þannig að skyrið verði létt í sér.
  • Oreo-kex er mulið og síðan er skyr og kex sett á víxl í skál eða glas.
  • Endið á að setja kex yfir og volá!

Ljúfmeti og lekkertheit.

Ljósmynd: Ljúfmeti og lekkerheit.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert