Bjórkokteill það nýjasta á barnum

Bjór er hin fínasta uppfylling í sumarkokteila.
Bjór er hin fínasta uppfylling í sumarkokteila.

Matarvefnum barst ábending um sérlega hressandi bjórkokteill sem nýtur vinsælda í miðborginni. Um er að ræða kokteil á veitingastaðnum Fredriksen þar sem ávextir og bjór blandast ákaflega sumarlega saman. Við blikkuðum manninn á barnum og nældum í uppskriftina.

Sumaröl Fredriksen

5 basil-lauf
3 cl banana líkjör
3 cl trönuberjasafi
3 cl tequila
Hrist saman

Fyllt upp með Pils Organic.
Skreytt með sykurrönd, brómberjum og basil-laufi

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert