Súkkulaðikaka grilluð í appelsínu

Ljósmynd: Albert Eiríksson

Fyrir þá sem eru að leita að nýjum og ferskum hugmyndum kemur þessi eins og ferskur andvari. Hér erum við að tala um köku sem bökuð er í appelsínu á grilli. Það gerist vart snjallara að okkar mati og við hvetjum alla til að prófa þessa fordæmalausu snilld. 

Það er Albert Eiríksson sem birtir þessa uppskrift á blogginu sínu en heiðurinn á Kjartan Örn vinur hans. 

Sjálfur segir Albert: „Ef þið viljið slá rækilega í gegn við grillið þá er þessi súkkulaðiterta grilluð í appelsínu málið. Það er ágætt að skilja svolítið eftir af appelsínukjötinu þegar hreinsað er innan úr – appelsínan gefur extra bragð – minnir svolítið á Grand Marnier. Kjartan notar glútenfrítt hveiti og svo er þessi dásemdareftirréttur án hvíts sykurs. Hugsið ykkur ekki um, kaupið appelsínur, brettið upp ermar og grillið heimsins bestu súkkulaðitertu.“

Albert ásamt Kjartani Erni.
Albert ásamt Kjartani Erni. Ljósmynd: Albert Eiríksson

Súkkulaðiterta grilluð í appelsínu

Fyrir fjóra

  • 4 appelsínur
  • 175 g af dökku gott súkkulaði
  • 100 g smjör
  • 2 egg
  • 2 eggjarauður
  • 2 msk. hunang
  • 1/3 tsk. salt
  • 40 g glútenfrítt hvítt hveiti
  • Til skrauts: Flórsykur og mynta

Aðferð: 

  1. Skerið toppinn af appelsínunni af og fjarlægið „kjötið” úr henni – gott er að skilja eftir þunnt lag næst hvíta laginu – það gefur gott bragð.
  2. Bræðið súkkulaði og smjör við lágan hita yfir heitu vatnsbaði.
  3. Hrærið saman eggjum og eggjarauðum með hunangi (gott er að nota handmixer). Bætið rólega glútenfría hvíta hveitinu saman við og bráðna súkkulaði/smjörblöndunni og hrærið mjög vel.
  4. Hellið deiginu í appelsínuhýðið, þó ekki meira enn ca. ¾ þar sem deigið á eftir að lyfta sér lítillega.
  5. Grillið (á efri grillgrindinni) á ca. 180°C í um það bil 35-40 mínútur (fer eftir stærð). Grilltíminn er tiltölulega langur, það er vegna þess að þykkt appelsínunnar einangrar. Kakan bakast frekar frá toppi til botns.
  6. Hægt er að stinga í hana með pinna til að athuga baksturinn, gott er ef kakan er smá blaut að innan.
  7. Mikilvægt: hafið hitann á appelsínuhúðinni ekki heitara en 180 gráður, annars verður appelsínan svört af bruna.
  8. Súkkulaðikaka úr appelsínuhúð er ekki aðeins „eyecatcher“ heldur gefur appelsínukjötið ljómandi appelsínubragð og súkkulaðikaka með fljótandi miðju er samt draumur.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert