Blár og baneitraður

Siglufjörður er einstaklega lystaukandi.
Siglufjörður er einstaklega lystaukandi. Mbl.is/Tm

Matarvefurinn heldur ferð sinni um landið áfram og kannar nú kokteila á Siglufirði. Þessi blái er ekki fyrir viðkvæma. Hann rífur upp stemminguna og hressir flesta við eins og Siglfirðingum er tamt. Uppskriftin er frá Hótel Sigló þar sem lekkerheitin og kokteilgleðin eru við völd.

Jökulsárlón

5 cl Reykarvodka

3 cl lime safi

Skvetta af appelsínubitter

2 cl Triple sec

Skvetta af Curaçao fyrir blá og dramatísk áhrif

Hristið öll innihaldsefnin saman með klaka nema Blue Curaçao. Hellið í martiniglas og hellið smá Curaçao yfir fyrir bláa fegurð.

Mbl.is/TM
Mbl.is/TM
Mikulas Brazda barþjónn á Hótel Sigló sér vel um sína.
Mikulas Brazda barþjónn á Hótel Sigló sér vel um sína. Mbl.is/TM
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert