Sameina skyr og ab-mjólk

Hin þykka ab-mjólk eins og varan kallast fæst hún í …
Hin þykka ab-mjólk eins og varan kallast fæst hún í 180 gr dósum með skeiðaloki. mbl.is/Arna

Mjólkurvinnslan Arna sem sérhæfir sig í laktósafríum vörum kynnti nýverið sérlegan samruna ab-mjólkur og skyrs sem verður að teljast ansi góð hugmynd en þar mætast hinir góðu ab gerlar og prótínið úr skyrinu.

Í tilkynningu sem mjólkurvinnslan birti á facebook segir „Við þróun á þessari vöru má segja að gamla góða ab-mjólkin hafi verið tekin á næsta stig þar sem hún inniheldur bæði ab-gerla og hátt hlutfall af hágæða mjólkurpróteinum en í hverri dós eru 18 g af próteinum.  Við höfum því sameinað kosti ab-mjólkur og skyrs í þessari nýju vöru sem fæst með fjórum bragðtegundum: Rabarbari og jarðarber – Appelsína og engifer – Vanilla – Súkkulaði og minta. Við sjálf erum afskaplega ánægð með þessa vöru og hlökkum til að heyra hvernig ykkur líkar.

Ef marka má viðbrögðin við tilkynningunni á facebook fellur nýjungin vel að smekk landsmanna en hátt í 500 manns hafa lýst yfir ánægju sinni með nýjungina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert