Snúðakaka með súkkulaði og sjávarsalti

Þessi bragðgóða snúðakaka hefur valdið töluverðum usla í fjöslkylduboðum Alberts.
Þessi bragðgóða snúðakaka hefur valdið töluverðum usla í fjöslkylduboðum Alberts. mbl.is/Kristinn Magnússon

Albert Eiríksson matgæðingur Matarvefjarins rifjaði upp sykursætar bernskuminningar við bakstur og útkoman er ákaflega bragðgóð.

„Eins lengi og ég man eftir mér hefur móðir mín bakað snúðaköku við miklar vinsældir. Við systkinin reynum oft að baka hana nákvæmlega eins og mamma gerir hana, en þið vitið hvernig andrúmsloftið, eldhúsið hennar mömmu, reynslan og sálin sem hún setur í baksturinn nær ekki alltaf í gegn. Þegar við bökum hana og gefum hinum að smakka, segjum við því alltaf: Iss! þetta er nú ekki eins og hjá mömmu. Einhverju sinni fékk Bergþór minn uppskriftina hjá mömmu, lagði sig allan fram og bakaði snúðakökuna nákvæmlega eins. Árdís var fyrst til að segja: Iss! þetta er nú ekki eins og hjá mömmu. Því miður var ég ekki búinn að segja honum að þetta væri fjölskyldubrandari….. (þau eru nýlega orðin vinir á fb aftur). 

<span>Hér er ný útgáfa af snúðakökunni. Í staðinn fyrir 2 dl af rúsínum eru 200 g af súkkulaði. Ég notaði rjómasúkkulaði með karamellukurli og sjávarsalti. Það kom mjög vel út en auðvitað getur fólk notað sitt uppáhaldssúkkulaði, þess vegna tvær tegundir og blandað þeim saman.“</span> <span> </span>

Snúðakaka

500 g hveiti (ca 3 1/2 bolli)
1 dl matarolía
3 tsk. ger
2 egg
1 tsk. sykur
3 dl volg mjólk/vatn (oftast nota ég aðeins volgt vatn)
½ tsk. salt
1 tsk. kardimommur

Fylling:

100 g smjörlíki/smjör – lint
150 g púðursykur (1 bolli)
1 msk. dökkt síróp
200 g súkkulaði, uppáhaldssúkkulaðið
1/2 tsk. salt
1 væn msk. kanill

Blandið þurrefnunum saman, bætið við eggjunum. Leysið gerið upp í mjólkurblandinu, bætið olíunni við – blandið öllu saman og látið lyfta sér í um klst.

Blandið saman smjöri (smjörlíki), púðursykri, sírópi, kanil og salti í potti á lægsta hita og takið af áður en smjörið bráðnar (má ekki verða of heitt).

Hnoðið deigið og fletjið það út (ekki of þunnt), hellið smjör/sykurbráðinni yfir. Stráið saxaða súkkulaðinu yfir. Rúllið upp og skerið í ca. 2 cm sneiðar. Raðið þeim í eldfast form. Látið lyfta sér í um 30-40 mín og bakið í 20-25 mín við 190°.

Albert Eiríksson er einn af matgæðingum Matarvefjarins en hann heldur …
Albert Eiríksson er einn af matgæðingum Matarvefjarins en hann heldur úti hinu vinsæla matarbloggi Alberteldar.com. mbl.is/Hanna Andrésdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert