Með 100 þúsund fylgjendur á Instagram

Jóhanna Maggý Hauksdóttir hefur undanfarin misseri orðið einn stærsti Íslendingurinn á samfélagsmiðlum. Fylgjendur hennar eru þó fæstir íslenskir enda hafa Ítalir heillast af þessari mögnuðu konu sem boðar bætta heilsu með hugarfari og mataræði.

Hún er ötull talsmaður þess að börn fái góða næringu og séu alin upp við hollan lífstíl en rödd hennar heyrist víða, ekki síst þar sem unnusti hennar er einn þekktasti útvarpsmaður Ítalíu og hefur hann verið ófeiminn við að ræða opinskátt heimspeki hennar.

Nýjasta afurð hennar er vefsíðan Motherspell en fjallað hefur verið um verkefnið í öllum helstu tímaritum Ítalíu og ljóst að þarlendir fá ekki nóg af hinni atorkusömu Jóhönnu.

Upphaflega fluttist Jóhanna til New York í pilates-kennaranám. Rétt fyrir útskrift hlotnaðist henni sá heiður að vera boðið starf við skólann sem hún var að útskrifast úr og þar starfaði hún næstu átta ár og kenndi á þeim tíma eingöngu einkatíma.

„Í kjölfarið fékk ég mikla löngun til að læra meira varðandi heilsu, gott hugarfar og mataræði og því skellti ég mér á alls kyns námskeið með það að markmiði að víkka sjóndeildarhringinn sem mest og auka þekkinguna. Svo vildi það þannig til að maðurinn minn var mikið að ræða það í útvarpinu hvað ég eldaði hollan og góðan mat fyrir okkur og börnin og hvað hann fyndi mikinn mun á líðan sinni eftir að mataræðið breyttist.

Í beinu framhaldi fara síðan að berast áskoranir frá hlustendum um að ég færi að halda úti bloggi eða einhverju því um líku,“ segir Jóhanna um tildrög þess að hún fluttist úr landi og hvernig Motherspell kom til sögunnar. „Ég hef mikla þörf fyrir að deila góðum boðskap þegar kemur að móðurhlutverkinu og bara sem kona almennt, þannig að þetta vatt mjög fljótt upp á sig. Í dag erum við með stóran lesendahóp sem er auðvitað frábært en fyrir mig var eins og það hefði kviknað á peru við að feta þessa braut.“

Grænmetisfæði er uppáhald Jóhönnu og henni þykir skemmtilegast að elda það. „Það er yndislegt að versla í matinn, bæði á Ítalíu og í New York því hráefnið er yndislegt. Svo hef ég sérlega gaman að því að prófa mig áfram með nýjar uppskriftir. Hollur matur og þá sérlega góðar og matarmiklar súpur eru mitt uppáhald og mér líður alltaf svo vel þegar ég borða gott grænmetisfæði. Svo eru pítsur líka í uppáhaldi, svona spari,“ bætir hún við.

Það getur þó reynst þrautin þyngri fyrir foreldra að koma grænmeti ofan í börnin sín þrátt fyrir að það sé auðvitað misjafnt. Þar lumar Jóhanna þó á góðum ráðum og hvetur foreldra til að gefast ekki upp. „Fyrstu árin eru svo mikilvæg og grunnurinn skiptir máli. Það kostar líka minna að græja matinn sjálfur og það er miklu minna mál en maður heldur. Það þarf bara að koma sér af stað. Ég forðast allan sykur og unna matvöru eins og heitan eld og hvet foreldra til að lesa sér til og kynna sér af hverju þetta skiptir máli.“

Sjálf segist Jóhanna elska að gufusjóða grænmeti, skera það smátt og setja vel af kókosolíu og túrmeriki yfir. Þetta borði hún með skeið upp úr stórri skál og sé hin fullkomna haustfæða. Aðspurð hvernig gangi að sameina hollt matarræði og ítalskan mat segir hún að það sé ekkert mál.

„Hér snýst allt um gæði matarins frekar en skammtastæðir. Þannig elda ég eingöngu hollan og góðan mat heima en þá er líka svo gott að fá sér gott pasta eða pítsu endrum og eins. Fyrir mér er hollur matur forréttindi og lífið er svo dýrmætt að okkur ber að njóta þess og fara vel með sjálf okkur og börnin okkar. Það má því segja að hollur matur sé dekur.“

Heilhveitivefjur

  • Heilhveitivefjur (ég nota helst glútenlausar)
  • Túnfiskur (það er líka til vegan túnfiskur fyrir áhugasama)
  • Avocado
  • Sólheima-pesto
  • Tómatar
  • Gúrka
  • Grænkál
  • Basis

Ég stappa saman túnfisk og avocado. Hita vefjurnar í 1-4 mínútur. Raða svo öllu hráefninu á miðja vefjuna og rúlla svo þétt saman. Fullkomið sem hollt og gott nesti í vinnuna eða skólann. Það er líka hægt að bera þær fram með bökuðum gulrótum og sætum kartöflum sem kvöldverð.

Bláberja og krækiberja smoothie

  • 1 msk. chia-fræ
  • 1 pera
  • 1 bolli íslensk krækiber og bláber

Leggið eina matskeið af chia-fræjum í vatn yfir nótt.
Morguninn eftir skal setja chia-fræin í blandara ásamt perunni. Sjálf tek ég hýðið af eða skola mjög vel.
Berið fram með berjunum, hampfræjum og kryddið með kanil eftir smekk.
Gott er að fá sér gott sykurlaust múslí með.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert