Pöntuðu Mínu Mús köku en fengu þetta í staðinn

Kakan átti að líta út eins og þessi lengst til …
Kakan átti að líta út eins og þessi lengst til vinstri en útkoman var ansi ólík. mbl.is/Reddit

Þetta er mögulega ljótasta kaka sem við höfum séð lengi og hafið í huga að hún er gerð eftir fyrirmynd. Ekki tókst þó betur til en svo að kakan minnir fremur á bjarnabófa en Mínu Mús enda var afmælisbarnið felmtri slegið þegar óskapnaðurinn var opinberaður.

Og já... þetta var ekki bakað af ólukkulegum heimabakara heldur var þetta gert í bakaríi sem gerir þetta enn þá misheppnaðra (og fyndnara).

Sú kem kökuna keypti deildi mynd af henni á samfélagsmiðlum sem hefur farið eins og eldur í sinu enda er þetta sprenghlægilegt. Af hverju kakan er svona sveitt er einnig á huldu!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert