Sirrý var búin að reyna allt

mbl.is/Facebook

Það gerist á bestu bæjum að litur smitast yfir í hendur og þá eru góð ráð dýr. Fjölmiðlakonan Sigríður Arnardóttir, betur þekkt sem Sirrý sagði farir sínar ekki sléttar í gær eftir að hafa sett fatalit í þvottavélina. Flíkin heppnaðist vel en hendur hennar urðu sótsvartar eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Hún leitaði góðra ráða og ekki stóð á þeim.

Eftir að hafa prófað nánast allt var lausnin fremur einföld. Hún nuddaði hendurnar upp úr kaffikorg og svo matarsóda sem hún bleytti í vatni og smá sápu.

 

 

Sirrý Arnardóttir.
Sirrý Arnardóttir. K100 / Magasínið
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert