Nú er hann svartur

Þessi er kolsvartur en við höfum áreiðanlegar heimildir fyrir því …
Þessi er kolsvartur en við höfum áreiðanlegar heimildir fyrir því að Skúbb-ísinn sé ekki alveg svona svartur. mbl.is/skjáskot

Í tilefni af svörtum föstudegi ætlar ísgerðin Skúbb að bjóða upp á svartan ís í dag. Það þýðir að allir sem búnir eru að pinteresta svartan ís síðan í vor geta látið drauma sína rætast.

Um er að ræða kókosís með saltkaramellu sem er framleiddur í mjög takmörkuðu magni. Einnig verður boðið upp á ýmis tilboð í dag enda svartur föstudagur en að sögn Karls Viggós Vigfússonar, eins eiganda Skúbb, er markmiðið að hafa gaman af þessu.

Þar hafið þið það. Við viljum meira svona.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert