Heitasta eldhústrendið árið 2018

Smartheitin eru mikil.
Smartheitin eru mikil. mbl.is/LG

Já, það er komið að hinni (verðandi) árlegu völvuspá Matarvefjarins því eins og allir vita erum við hér á ritstjórninni helteknar af öllu því er viðkemur mat og eldhúsum. Það er því fullkomlega eðlilegt að við deilum þessari vitneskju með lesendum vorum sem okkur þykir svo vænt um.

Við byrjum á heimilistækjum en eins og allir vita hefur ýmislegt verið í tísku undanfarin ár; allt frá talandi ísskápum upp í innbyggðar sous vide-græjur, hágæðakaffivélar og svo mætti lengi telja.

En eitt er trendið sem mun gera allt vitlaust á komandi ári og það eru svört heimilistæki. Framleiðendur keppast nú við að framleiða slíka gripi og margir eru þegar farnir að streyma hingað til lands.

Oftar en ekki kosta þau töluvert meira þannig en hefðbundin tæki og þá er auðvitað lítið mál að skrúfa af ísskápshurðina og láta pólýhúða hana. Eða við ímyndum okkur það. Við tökum enga ábyrgð á þessum ráðleggingum enda ekki prófað þær en við hættum seint að dást að svörtu gripunum og bíðum spenntar eftir að verslanir fyllist af þeim.

Svörtu heimilistækin kámast ekki út eins og burstaða stálið.
Svörtu heimilistækin kámast ekki út eins og burstaða stálið. mbl.is/LG
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert