Stökkt og bragðmikið kjúklingatacos

mbl.is/Eva Laufey

Það er fullkominn dagur í dag fyrr kjúklingatacos en þessi uppskrift inniheldur flest það sem gott taco þarf að prýða. 

Það er engin önnur en Eva Laufey sem á uppskriftina og hælir henni óspart. Þar sem Eva Laufey er nú þekkt fyrir að galdra fram hreinræktaðar kræsingar er ekki annað hægt en að prófa þessa dásemd. 

Stökkt og bragðmikið kjúklingatacos

  • Kjúklingakjöt (magnið fer eftir því smekk)
  • Nando’s Peri Peri sósa (hot)
  • Tortillavefjur
  • Olía til steikingar
  • Salsa
  • Lárperumauk
  • Ostur
  • Sýrður rjómi
  • Kóríander
  • Sítróna eða límóna
  • Salsa
  • 2 tómatar
  • 1 laukur
  • Handfylli kóríander
  • Salt á hnífsoddi
  • Pipar
  • Ólífuolía
  • Skvetta af sítrónusafa

Aðferð:

  1. Skerið tómata, lauk og saxið kóríander mjög smátt.
  2. Blandið öllum hráefnum saman í skál, kryddið til með salti og pipar.
  3. Hellið smávegis af ólífuolíu og kreistið safann úr sítrónu yfir, blandið vel saman og geymið í kæli í 10 – 15 mínútur.

Lárperumauk

  • 2 lárperur
  • ½ hvítlauksrif
  • Handfylli kóríander
  • Skvetta úr hálfri sítrónu eða límónu
  • Salt

Aðferð:

  1. Maukið lárperurnar, rífið niður hálft hvítlauksrif og blandið saman við.
  2. Saxið kóríander og bætið honum  við, kreistið sítrónusafa yfir og kryddið til með vel af salti.  (þið getið líka notað matvinnsluvél eða töfrasprota ef þið viljið mjög fína áferð)

Kjúklingataco!

Aðferð:

  1. Hitið vel af olíu á pönnu, mikilvægt að nota olíu sem þolir háan hita.
  2. Þegar olían er heit steikið þið tortilla vefjurnar, eina í einu þar til þær eru  gullinbrúnar og stökkar. Mótið vefjurnar þannig hún sé eins og taco skel, setjið á eldhúspappír og þerrið aðeins.
  3. Rífið niður kjúklingakjöt (ég notaði afgang af heilum kjúkling) og hellið Peri Peri sósu yfir, smekksatriði hversu mikla sósu þið notið. Kreistið einnig sítrónusafa yfir kjúklinginn.
  4. Bræðið ost í potti eða inn í ofni, ég notaði bara venjulegan ost.
  5. Fyllið taco skeljarnar af ljúffengu kjúklingakjöti, bræddum osti, æðislega fersku salsa, lárperumauki og setjið smávegis af sýrðum rjóma í lokin og sáldrið enn meiri kóríander yfir.
mbl.is/Eva Laufey
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka